12 ára stúlka á von á barni í Bretlandi

Fimmtán ára gamall skoskur piltur hefur verið ákærður fyrir nauðgun með því að hafa samfarir við 11 ára gamla stúlku, sem nú á von á barni. Áætlað er að stúlkan eignast barnið eftir nokkrar vikur og þá verður hún yngsta móðir sem vitað er um á Bretlandseyjum, 12 ára og 8 mánaða gömul.

Blaðið The Sun ræðir við stúlkuna en nafn hennar er ekki nefnt. Blaðið segir að stúlkan hafi orðið vanfær eftir að hafa átt kynmök við piltinn í drykkjuveislu. Stúlkan segir við blaðið, að hún hafi ekki haldið að nein hætta væri á að hún yrði ófrísk þar sem þetta var í fyrsta skipti. Hún segist hins vegar hlakka mikið til að verða mamma. Móðir stúkunnar, sem er 34 ára og eignaðist nýlega barn, segist vera stolt af dóttur sinni.

Blaðið segir, að stúlkan hafi byrjað að reykja 9 ára og reyki nú pakka af sígarettum á dag. Hún segist aðspurð ekki telja að það hafi slæm áhrif á barnið sem hún ber undir belti.

Yngsta móðir á Bretlandseyjum til þessa var 12 ára og 9 mánaða þegar hún eignaðist barn árið 1997. Mál þetta hefur að vonum vakið athygli í Bretlandi og umræður um nauðsyn þess að bæta kynlífsfræðslu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert