Ungabarn lést þegar faðir þess gleymdi því í bíl í Höfðaborg

17 mánaða gamall drengur lést þegar faðir hans gleymdi honum í bíl sínum í nokkra klukkutíma í Höfðaborg í Suður-Afríku á föstudaginn. Maðurinn átti að keyra son sinn á dagheimili á leið sinni til vinnu, en gleymdi því og keyrði í stað þess beint í vinnuna án þess að muna eftir drengnum sem sat í aftursætinu.

Móðir drengsins kom að honum í bílnum eftir að hafa farið á dagheimilið til þess að sækja hann, en komist að því að hann hafði aldrei skilað sér.

Ekki er vitað hvað olli dauða barnsins en krufning fer fram í dag. Hiti fer vel yfir 20 stig í Höfðaborg um þessar mundir og gæti það tengst dauða barnsins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert