Segist hafa selt Petterson Mockfjärds-byssuna

Christer Pettersson.

Christer Pettersson. mbl.is

Einn þeirra, sem tóku þátt í svonefndu Mockfjärdsráni í Svíþjóð árið 1983 sagðist við yfirheyrslur árið 1997 hafa selt Christer Pettersson, byssu sem notuð var í ráninu og talið er að hafi verið notið til að myrða Olof Palme, forsætisráðherra Svíþjóðar, árið 1986.

Kafarar á vegum sænska blaðsins Expressen fundu í vikunni skammbyssu í vatni í Dölunum og afhentu lögreglu sem rannsakar nú, hvort um er að ræða fyrrgreinda byssu.

Að sögn Expressen segir í dag að maður, sem nefndur er Pekka og tók þátt í svonefndu Mockfjärdsráni, hafi haft byssuna undir höndum og sent Christe Pettersson hana árið 1985. Pettersson var á sínum tíma fundinn sekur um morðið á Palme en síðan sýknaður af áfrýjunarrétti.

Annar maður, sem tók þátt í ráninu, fullyrðir hins vegar að byssunni hafi verið kastað í vatnið þegar árið 1983.

Líklegt þykir, að byssan hafi verið notuð við rán í pósthúsi í Mockfjärd 1983 en þá var einn viðskiptavinur þess skotinn í fótinn. Var kúlan rannsökuð og síðar kom í ljós, að efnasamsetning hennar, blýsamsæturnar, var sú sama og í kúlunum tveimur, sem fundust á Sveavägen eftir morðið á Olof Palme. Eru kúlurnar þrjár af sömu gerð og þær, sem hinn fyrri og rétti eigandi byssunar átti og ekki var stolið í innbrotinu. Það bendir því flest til þess, að sama byssan hafi verið notuð í bæði skiptin. Þótt rannsókn sýni, að byssan hafi verið notuð við morðið á Palme, getur hins vegar orðið þrautin þyngri að tengja hana við einhvern ákveðinn mann.

Olof Palme var myrtur 28. febrúar 1986. Voru þau hjónin, Lisbeth og hann, að koma úr kvikmyndahúsi er maður kom að þeim og skaut Palme.

Við sakbendingu benti Lisbeth á Christer Pettersson, afbrotamann og eiturlyfjaneytanda, og var hann dæmdur í undirrétti í júlí 1989. Var dóminum áfrýjað og í hæstarétti var málinu vísað frá vegna skorts á sönnunum.

Lisbeth og börn þeirra Palme og raunar mjög margir Svíar eru enn viss um, að Christer Pettersson hafi orðið Palme að bana. Líkur á, að málið upplýsist hafa hins vegar dofnað mjög með árunum og eru ekki miklar enda lést Pettersson fyrir tveimur árum.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent »

Fimmtungur sett kynferðislegar myndir á netið

Í gær, 23:46 Fimmtungur sænskra ungmenna hefur sent öðrum myndir af sér í kynferðislegum stellingum í gegnum internetið og af þeim hafa 11% stúlkna gert það vegna þess að þeim fannst þær tilneyddar til þess. Þetta er á meðal niðurstaðna nýrrar könnunar í Svíþjóð. Meira »
Francois Hollande forseti Frakklands.

Frakkar ætla frá Afganistan

Í gær, 22:11 Francois Hollande, forseti Frakklands, segir Frakka hafa gert meira en skyldu sína í Afganistan. Hann segir að áætlun um að draga herlið Frakka út úr landinu muni liggja fyrir á næstu dögum og að það verði væntanlega ekki síðar en í lok ársins. Meira »

Harður jarðskjálfti í Búlgaríu

01:50 Jarðskjálfti, sem mældist 5,8 stig, varð í Búlgaríu skömmu eftir miðnætti að íslenskum tíma. Ekki er vitað um tjón en margir eftirskjálftar hafa fylgt í kjölfarið. Meira »

Vilja merkja vörur frá Ísrael

Villy Søvndal, utanríkisráðherra Danmerkur.
Í gær, 21:20 Dönsk stjórnvöld hafa í hyggju að merkja sérstaklega vörur sem framleiddar eru í landnemabyggðum gyðinga á Vesturbakkanum. Þetta er haft eftir Villy Søvndal, utanríkisráðherra Danmerkur, í danska dagblaðinu Politiken. Meira »

Vonir Le Pens um þingsæti í uppnámi

Marine Le Pen, leiðtogi frönsku Þjóðfylkingarinnar.
Í gær, 21:09 Vonir leiðtoga frönsku Þjóðfylkingarinnar (Front National), Marine Le Pen, um að ná í fyrsta sinn fulltrúa inn á franska þingið kunna að verða að engu ef marka má niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar í Frakklandi en þingkosningar fara fram í landinu 17. júní næstkomandi. Meira »

Myrti bróður sinn og sundurlimaði

Í gær, 21:52 Rúmlega fertugur danskur karlmaður var í dag dæmdur fyrir að hafa myrt eldri bróður sinn og að því búnu hlutað lík hans í sundur. Meira »

Egyptar kjósa forseta myndskeið

Egypt's Brotherhood goes into election hamstrung
Í gær, 21:10 Egyptar ganga að kjörborðinu á miðvikudag og fimmtudag og kjósa sér forseta. Hershöfðingjaráð landsins hvetur landsmenn til að virða niðurstöður kosninganna. Fái enginn frambjóðendanna hreinan meirihluta verður kosið aftur á milli þeirra efstu. Meira »

Grikkir fá 23% lægri laun

Í gær, 20:52 Grikkir fá að meðaltali 23% minna útborgað í ár, en þeir fengu í fyrra vegna samninga sem gríska ríkisstjórnin gerði við Evrópusambandið og Alþjóðagjaldeyrissjóðinn um aðgerðir gegn skuldavanda. Meira »

Varar Breta við íslenskri einangrun

Kenneth Clarke, dómsmálaráðherra Bretlands.
Í gær, 19:31 „Mér kemur ekkert til hugar sem er eins óviðkomandi núverandi stöðu mála né nokkuð sem væri eins hörmulegt og ef Bretar segðu skilið við Evrópusambandið og tækju þá ákvörðun að nú væri rétti tíminn til þess að koma sér í frábæra einangrun ásamt Íslandi og fleirum.“ Meira »

Getnir eftir andlát föður og arflausir

Í gær, 18:15 Hæstiréttur í Bandaríkjunum úrskurðaði í dag að tvíburar, sem getnir voru með glasafrjóvgun eftir andlát föður þeirra, væru ekki réttmætir erfingjar hans. Karen Capato, móðir þeirra fæddi þá 18 mánuðum eftir lát hans, en hann hafði látið frysta sæði sitt. Meira »

Margir heimilislausir eftir skjálfta

Klukkuturn í Modena héraði skemmdist í skjálftanum.
Í gær, 18:50 Þúsundir íbúa Norðaustur-Ítalíu búa sig undir að verja annarri nóttinni í röð í tjöldum og bifreiðum eftir að öflugur jarðskjálfti reið þar yfir í gær með þeim afleiðingum að sex létu lífið og miklar skemmdir urðu á mannvirkjum. Meira »

Fimm stjörnu flokkurinn vann sigur

Ítalski grínistinn Beppe Grillo.
Í gær, 18:02 Nokkuð óvænt úrslit urðu í sveitarstjórnarkosningum í norðurhluta Parma-héraðs á Ítalíu í dag, þegar „Fimm stjörnu flokkurinn“ undir forystu grínistans Beppe Grillo, fékk 60% atkvæða. Meira »

Dæmdur fyrir upptöku af herbergisfélaga

Í gær, 17:27 Tvítugur indverskur námsmaður í Bandaríkjunum, Dharun Ravi, hefur verið dæmdur í 30 daga fangelsi 300 daga samfélagsvinnu fyrir að hafa notað vefmyndavél til þess að gera upptöku af herbergisfélaga sínum þar sem hann kyssti annan karlmann í september 2010. Meira »

Óttast blóðuga borgarastyrjöld

Ban Ki-moon framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna.
Í gær, 16:43 Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, varaði við því í dag að nú væri ögurstund í friðarumleitunum í Sýrlandi og sagðist hafa af því þungar áhyggur að blóðug borgarastyrjöld brytist út, nái deiluaðilar ekki saman. Meira »

Vilja Grikki áfram á evrusvæðinu

Í gær, 16:14 Stjórnvöld í Þýskalandi og Frakklandi hétu því í dag að gera „allt sem þau gætu“ til að Grikkir yrðu áfram á evrusvæðinu, en gríðarlegar skuldir þeirra hafa orðið tilefni vangaveltna um að þeir yrðu útilokaðir þaðan. Meira »

Mannskætt rútuslys í Albaníu

Í gær, 16:44 Í það minnsta ellefu eru látnir og 22 alvarlega slasaðir eftir að rúta keyrði fram af bjargbrún í Himara í Albaníu, um 220 km frá höfuðborginni Tírana. Meira »

Kastaði börnum sínum fram af svölum

Fjölskyldan bjó í þessari byggingu í bænum Brescia.
Í gær, 16:19 Ítalskur faðir í fjárhagserfiðleikum myrti tvö ung börn sín með því að henda þeim fram af svölum sjöttu hæðar íbúðarhúss. Hann fyrirfór sér síðan með því að stökkva fram af svölunum. Meira »

Vatnið var rautt af blóði

Frá réttarhöldunum yfir norska fjöldamorðingjanum Anders Behring Breivik.
Í gær, 15:54 Viðstadda setti hljóða í réttarsal númer 250 í húsi héraðsdómsins í Ósló þegar ungmenni, sem sluppu undan byssukúlum norska fjöldamorðingjans Anders Behrings Breiviks 22. júlí í fyrra, lýstu upplifun sinni frá þessum skelfilega degi. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Vw Golf 1.6 Highline 2003
VW Golf árg 2003 ekinn aðeins 112.000 km. búið er að skipta um tímareim. Ver...
VW Polo 1,4L 2000árg. á 370þ.kr.
VW Polo Comfortline til sölu,ekinn um 123þ.km.Aðeins 2 eigendur, ný tímareim, ný...
Bumbo barnastóll
Lítið notaður Bumbo barnastóll til sölu á hálfvirði. Upplýsingar í síma 862 30...
Æðislega sæt barnaúr til sölu - 1000kr.
Flott barnaúr fyrir krakka 3-9 ára: Cars, Spiderman, Hello Kitty og Toy Story. 1...
 
Lausar kennarastöður
Grunn-/framhaldsskóla
Lausar kennarastöður við leik- og gru...
Farþegaskipið moby dick til sölu

Moby Dick til sölu Farþegaskipið Moby...
Sýslumaðurinn í kópavogi - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Framleiðslustjóri
Stjórnunarstörf
Framleiðslustjóri Starf framleiðslust...