Árið 2007 gengið í garð í Ástralíu

Reuters

Nýtt ár, árið 2007, er gengið í garð hinumegin á jörðinni. Árinu er nú fagnað í Sydney í Ástralíu með mikilli flugeldasýningu sem er óvenju vegleg í ár því borgin mun á næstu mánuðum halda upp á 75 ára afmæli Hafnarbrúarinnar, sem sést á meðfylgjandi myndum upplýst ásamt óperuhúsinu fræga.

Áætlað er að flugeldasýningin, sem haldin er undir yfirskriftinni „Demantanótt í smaragðaborginni“ kosti hátt á þriðja hundrað milljóna króna og eru notuð 3 tonn af flugeldum og bombum.

Reuters
Reuters
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert