Jaap de Hoop Scheffer verður framkvæmdastjóri NATO til ársins 2009

Jaap de Hoop Scheffer
Jaap de Hoop Scheffer Reuters

Framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins (NATO), Jaap de Hoop Scheffer, mun gegna starfi framkvæmdastjóra bandalagsins næstu tvö árin eða til ársins 2009. Þetta var ákveðið á fundi framkvæmdastjórnar NATO í dag, samkvæmt heimildum AFP-fréttastofunnar.

Jaap de Hoop Scheffer, sem áður var utanríkisráðherra Hollands, tók við starfi framkvæmdastjóra NATO í janúar 2004. Mun hann gegna starfinu fram yfir sextíu ára afmæli Atlantshafsbandalagsins árið 2009, samkvæmt heimildum AFP.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert