Arabískur múslími tekur sæti í ríkisstjórn Ísraels

Ehud Olmert forsætisráðherra Ísraels.

Ehud Olmert forsætisráðherra Ísraels. Reuters

Ríkisstjórn Ísraels kaus í dag arabískan múslíma inn í stjórnina í fyrsta sinn í sögu landsins. Skrifstofa forsætisráðherrans gaf út tilkynningu þess efnis í dag að Gahleb Majadleh sem er 53 ára flokksmaður í Verkamannaflokknum mun verða ráðherra án ráðuneytis.

Hátt settur embættismaður tjáði AFP fréttastofunni að ráðningin hefði verið samþykkt af öllum ráðherrum ríkisstjórnarinnar fyrir utan Avigdor Lieberman sem er ofur-þjóðernissinnaður.

Þetta skref hefur verið túlkað sem aðför Verkamannaflokksins gegn þjóðernissinnum sem hafa horn í síðu ísraelskra araba sem eru um 20% þjóðarinnar.

2001 var Salah Tarif, sem tilheyrir minnihluta Drúsa í Ísrael, gerður að ráðherra án ráðuneytis en hann sagði af sér skömmu síðar vegna kæru um spillingu. Hann hlaut dóm í desember 2003.

Lieberman hefur verið sakaður um kynþáttafordóma vegna tilmæla hans um að flytja ætti ísraelska araba nauðungarflutningum yfir á Vestur Bakkann.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent »

Hollenskir sérfræðingar undirbúa olíudælingu úr Costa Concordia.

Undirbúa olíudælingu úr skipinu myndskeið

Í gær, 22:22 Björgunarmenn undirbjuggu í dag að dæla olíu úr skemmtiferðaskipinu Costa Concordia sem strandaði 13. janúar. Lögmaður fórnarlamba slyssins krefst hárra skaðabóta fyrir þeirra hönd. Meira »

Átta ára barn meðal látinna

Í gær, 21:52 Maðurinn sem myrti þrjár manneskjur í bænum Nutaarmiut á Grænlandi í gær játaði fyrir dómara í dag að bera ábyrgð á dauða þeirra. Hinar látnu eru tvær konur, 75 og 31 árs, og átta ára stúlka. Meira »

Obama hrósaði Monti myndskeið

Obama og Mario Monti
00:11 Barack Obama Bandaríkjaforseti sparaði ekki lofið þegar hann tók á móti Mario Monti forsætisráðherra Ítalíu í gær, fimmtudag. Obama sagði Monti auka tiltrú manna á evrópska efnahagsvæðinu með björgunaraðgerðum sínum heima fyrir. Meira »

Ætla ekki að færa andstöðunni vopn

Sýrlenskir uppreisnarmenn í borginni Idlib.
Í gær, 20:48 Bresk stjórnvöld hafa engan hug á því að færa stjórnarandstöðunni í Sýrlandi vopn, segir utanríkisráðherra landsins. Hann segir Breta aldrei gera slíkt og það standi ekki til að breyta út af þeirri reglu. Meira »

Leggja fram kvörtun hjá SÞ

Argentínumenn hafa orðið órólegir eftir að bresk herskip hafa sést í kringum Falklandseyjar.
Í gær, 18:36 Argentínsk stjórnvöld munu á morgun formlega leggja fram kvörtun vegna þess sem þeir kalla „hervæðingu“ Falklandseyja.  Meira »

Leyfa fyrsta kjarnorkuverið frá 1978

Kjarnorkuslysið í Japan í fyrra gefur tilefni til að fara varlega í ný ver í ...
Í gær, 21:06 Bandarísk stjórnvöld hafa í dag lagt blessun sína yfir byggingu nýs kjarnorkuvers, þess fyrsta í landinu frá árinu 1978. Formaður kjarnorkuráðsins var á móti því að veita leyfið. Meira »

Borin kennsl á 162 lík

Talið er að um 100 þúsund manns hafi fallið í stríðinu í Bosníu.
Í gær, 20:34 Borin hafa verið kennsl á líkamsleifar 162 sem féllu í Bosníu stríðinu á árunum 1992-95 og var hent í stöðuvatn í austurhluta landsins. Sá yngsti sem var drepinn var aðeins þriggja ára. Meira »

Mossad þjálfar andófsmenn í Íran

Sprengjunni sem grandaði Mostafa Ahmadi-Roshan var komið fyrir undir þessum bíl.
Í gær, 15:55 Mossad, leyniþjónusta Ísraels, hefur þjálfað andófsmenn í Íran til að taka fólk af lífi. Þetta segir bandaríska sjónvarpsstöðin NBC að komi fram í skýrslu bandarískra stjórnvalda. Meira »

Verkalýðsfélög boða verkföll

Evangelos Venizelos, fjármálaráðherra Grikklands, kemur til fundar við lánadrottna í dag.
Í gær, 15:46 Forystumenn Grikklands náðu á síðustu mínútu samkomulagi um ríkisfjármálin í dag sem auðveldar fjármálaráðherrum evruríkjanna að klára að ná niðurstöðu í björgunarpakkanum svokallaða, en ráðherrarnir funda í Brussel í dag. Verkalýðsfélög í Grikklandi mótmæla þó og hafa boðað allsherjarverkföll. Meira »

Garzón sakfelldur

Baltasar Garzón í réttarsalnum í dag
Í gær, 14:17 Hæstiréttur Spánar hefur dæmt spænska rannsóknardómarann Baltasar Garzón sekan um að hafa heimilað ólöglegar upptökur af samtölum lögmanna. Meira »

Færri fæðingar í Danmörku

Í gær, 15:14 13.870 börn komu í heiminn í Danmörku á síðustu þremur mánuðum ársins 2011. Ekki hafa svo fá börn fæðst í landinu frá árinu 1988. Þetta kemur fram í tölum dönsku hagstofunnar. Tölurnar sýna ennfremur að meira en 1% dönsku þjóðarinnar er nú af tyrkneskum uppruna. Meira »

Rússar efins um þjóðabandalag

Frá borginni Homs í Sýrlandi.
Í gær, 14:06 Rússar eru fullir efasemda vegna fyrirætlana Bandaríkjamanna um að mynda samtök ríkja sem eru vinveitt Sýrlandi. Ríkin munu hugsanlega hittast í Tyrklandi innan tíðar til að samræma aðgerðir sínar. Meira »

Grikkir hafa náð niðurstöðu

Lucas Papademos, forsætisráðherra Grikklands, og Evangelos Venizelos, fjármálaráðherra, í dag.
Í gær, 14:06 Samkomulag hefur náðst á meðal flokksformanna í ríkisstjórn Grikklands um ráðstafanir í ríkisfjármálum sem gerðar voru að kröfu Evrópusambandsins og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins vegna björgunarpakkans svokallaða. Meira »

Mannskæð bílsprengja í Taílandi myndskeið

Mannskæð bílsprengja í Taílandi
Í gær, 12:59 Einn lést og 13 særðust, þar af þrír lífshættulega, þegar sprengja sprakk í bíl í suðurhluta Taílands í morgun.   Meira »

Myrti stuðningsfulltrúa í Danmörku

Þessi 22 grænlensku börn voru árið 1951 flutt frá Grænlandi til Danmörkur. Í þessum hópi ...
Í gær, 12:23 Morð á 46 ára gömlum stuðningsfulltrúa í Danmörku hefur vakið mikla athygli. Ástæðan er m.a. sú að morðinginn er sonur grænlenskrar konu sem var á unga aldri flutt, ásamt 21 barni, frá heimili sínu í Grænlandi til Danmerkur. Meira »

Dóná ísilögð í sex löndum

Ísilögð Dóná við Linz
Í gær, 14:04 Samgöngur á Dóná hafa víða farið úr skorðum þar sem þykkur ís er yfir ánni á nokkur hundruð km svæði í sex ríkjum Evrópu.  Meira »

Slóvakar styðja Grikki ekki frekar

Ivan Miklos fjármálaráðherra Slóvakíu.
Í gær, 12:58 Slóvakar hafna því að veita Grikkjum frekari fjárhagsaðstoð, umfram 130 milljarða evra björgunarpakkann sem grísk stjórnvöld reyna nú að tryggja sér. Fjármálaráðherra segir að frekari aðstoð þurfi að koma úr einkageiranum. Meira »

Cameron vill læra af Íslandi

Forsætisráðherrar Norður-Evrópuríkjanna á ráðstefnunni Northern Future Forum í Stokkhólmi í Svíþjóð.
Í gær, 12:09 David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, segir að Bretar geti lært margt af kynjakvótum Noregs og Íslands varðandi hlutfall kynjanna í stjórnum fyrirtækja. Cameron segir að séu kraftar kvenna ekki nýttir til fulls, hafi það neikvæð áhrif á efnahaginn. Meira »

Erlend málefni

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Viskí glös og kanna.
Tilvalið fyrir viskí áhugafólkið. Vatnskanna (28cl), kr. 3.500,- Nosing Copita...
Klassískt og vandað sófasett
Afar vandað klassískr sófasett, rauðbrúnt. Sófi og tveir stóla til sölu. Vel með...
125 cc Dirt Bike
Til sölu lítið notað X-motos DirtBike árg. 2008. Tilboð óskast ! Baldur 848-6972...
FRÍMERKI -MYNT-SEÐLAR
KAUPI FRÍMRKI OG AFKLIpPT FRÍMERKI. ÍSLENSKA PENIINGASEÐLA OG MYNT. ORÐ...
 
Vélvirki
Iðnaðarmenn
A-K Maskiner Leknes, Lofoten, Noregur Ó...
Leikskólastjóri
Leikskólakennsla
Leikskólastjóri Seyðisfjarðarkaups...
Forstöðumaður þekkingarmiðstöðvar sjálfsbjargar
Stjórnunarstörf
Forstöðumaður Þekkingarmiðstöðvar...
Meðeigandi að rakarastofu
Hárgreiðsla/Snyrting
Meðeigandi Óska eftir meðeiganda að raka...