Menningarlegur landskjálfti í Frakklandi
Reuters
Reykingabannið á eftir að valda byltingu. Margs konar fyrirtæki hafa leyft reykingar innandyra og víða hafa verið við lýði eins konar "reykingahorn", s.s. á kennarastofum skóla, þar sem fólki var leyft að reykja. Þau hverfa nú alveg.
Fyrirtækjum verður að vísu heimilt að láta útbúa sérstök herbergi, þar sem komið yrði fyrir öflugum viftum til að soga reykinn á brott, en ekki þykir líklegt að mörg muni ráðast í slíkar framkvæmdir, enda um kostnaðarsaman búnað að ræða.
Reykingabannið sem tekur gildi á fimmtudag er hins vegar aðeins fyrsta lota. Öllum er ljóst að stóra stökkið verður 1. janúar nk. þegar bann við reykingum á frönskum krám og kaffihúsum á að taka gildi. Hefur verið rætt um menningarlegan landskjálfta í þeim efnum, enda Frakkar frægir fyrir að vilja reykja sígarettu með kaffinu sínu; mýtan um keðjureykjandi fransmenn, sem helst vilja sitja fram á rauða nótt og ræða um heimspeki, er ekki algerlega úr lausu lofti gripin.
Nýlegar rannsóknir benda raunar til að reykingamönnum fjölgi í Frakklandi, einkum í yngstu aldurshópum. Um 32% fullorðinna, 15–75 ára, reykja en hlutfallið er næstum 50% í aldurshópnum 18–25 ára.
Þarf því engan að undra að Peter Boyle, forstöðumaður krabbameinsrannsóknastöðvar Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) í Lyon í Frakklandi, fagni í samtali við The Washington Post þeim tímamótum, sem nú eru að verða í Frakklandi.
"Þetta hefur valdið byltingu að því er varðar almannaheilsu í Evrópu," segir Boyle með vísan til þeirrar þróunar, sem verið hefur í Evrópu síðustu ár, en reykingabann hefur þegar tekið gildi á Írlandi, Ítalíu, Skotlandi, Sviss og Noregi.
En talið er að 500.000 manns deyi ár hvert í 27 löndum Evrópusambandsins af völdum sjúkdóma sem rekja megi til reykinga.
Sumir efast um að franska stjórnin muni þora að stíga skrefið til fulls 1. janúar nk. Hefðin fyrir reykingum sé slík í Frakklandi. Margir muni í öllu falli halda sínu striki og reykja þar sem þeim sýnist, hvað sem líður þeirri staðreynd, að menn munu eiga yfir höfði sér sekt upp á 68 evrur, um 6.300 ísl. krónur, kveiki þeir í þar sem ekki má reykja.


































