Færeyingar haga sér manna best

Frá Tinganes í Þórshöfn í Færeyjum.
Frá Tinganes í Þórshöfn í Færeyjum. mbl.is/Dagur

Hvergi í heiminum eru færri fangelsaðir fyrir brot á landsins lögum en í Færeyjum. Að meðaltali eru sjö Færeyingar á bak við lás og slá og er það lægsta hlutfall fanga miðað við höfðatölu sem um getur. Þetta er niðurstaða könnunar sem gerð var hjá King's College í London og samkvæmt henni eru að meðaltali 120 fangar í afplánun á Íslandi hverju sinni.

Í færeyska dagblaðinu Sosialurinn kemur fram að fyrir hverja 100 þúsund íbúa eru 737 á bak við lás og slá í Bandaríkjunum sem eiga metið í afbrotamönnum í afplánun en einungis 15 í Færeyjum sem eru neðst á listanum sem nær yfir 214 lönd.

Rússland er í öðru sæti með 615 og Ísland í 197. sæti með 40 fanga fyrir hverja 100 þúsund íbúa.

Í þórshöfn er lítil hætta á að vera rændur.
Í þórshöfn er lítil hætta á að vera rændur. mbl.is/Dagur
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert