Öryggisráðið lýsir „alvarlegum áhyggjum“ af töku bresku sjóliðanna

Nokkrir bresku sjóliðanna í haldi Írana.
Nokkrir bresku sjóliðanna í haldi Írana. Reuters

Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti í kvöld yfirlýsingu þar sem lýst er „alvarlegum áhyggjum“ af handtöku Írana á 15 breskum sjóliðum, og írönsk stjórnvöld eru hvött til að leyfa breskum sendiráðsstarfsmönnum að hitta sjóliðana.

Bretar höfðu farið fram á að ráðið krefðist þess að sjóliðarnir yrðu tafarlaust látnir lausir, en Rússar kváðust ekki geta fallist á þau tilmæli Breta, að því er haft var eftir vestrænum stjórnarerindreka.

Sendiherra Rússa hjá Sameinuðu þjóðunum, Vítalí Tsjúrkín, greindi frá þessari afstöðu rússneskra yfirvalda á lokuðum samráðsfundi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert