„Harmleikur fyrir þjóðina“

Robert Mugabe.
Robert Mugabe. Reuters

Stjórnarandstaðan í Zimbabwe, Lýðræðishreyfingin, kallar það „harmleik“ að Robert Mugabe, núverandi forseti, hafi verið valinn forsetaframbjóðandi flokks síns, ZANU-PF.

„Þetta er sannkallaður harmleikur fyrir þjóðina. Ríkjandi ástand batnar ekki svo lengi sem Mugabe ræður,“ sagði framkvæmdastjóri flokksins, Tendai Biti.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert