Ellefu fótboltastrákar drukknuðu á Indlandi

Tíu strákar sem voru að spila fótbolta drukknuðu í dag þegar þeir reyndu að koma félaga sínum til hjálpar eftir að hann datt í straumharða á, en hann fórst einnig. Þetta gerðist í Lucknow, höfuðborg Uttar Pradesh á Indlandi, að því er fréttastofan AFP greinir frá. Drengirnir voru á aldrinum átta til 13 ára. Þeir voru í fótbolta á bökkum árinnar Yamuna þegar boltinn fór út í, og þegar einn þeirra reyndi að ná í hann datt hann í ána. Hinir hoppuðu út í hver af öðrum til að reyna að bjarga vini sínum, en allir bárust burtu með straumharðri ánni, að þvi er talsmaður lögreglunnar í Lucknow tjáði AFP.
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent »

Ein af flugvélum bandaríska flugfélagsins US Airways.

Sagðist vera með sprengju í líkamanum

20:32 Bandarísk farþegaflugvél flugfélagsins US Airways, sem var á leiðinni frá París til borgarinnar Charlotte í Norður-Karólínuríki í Bandaríkjunum var lent snarlega eftir að frönsk kona sem var farþegi um borð, sagðist vera með „ígræddan búnað“ sem gæti grandað vélinni. Meira »
Frá mótmælunum á Spáni í dag.

Kennarar og nemendur mótmæla

20:09 Tugþúsundir kennara og nemenda á Spáni mótmæltu í dag fyrirhuguðum niðurskurði í menntamálum í landinu. Fólkið lagði niður störf og gekk fylktu liði um götur og stræti Spánar, margir í grænum stuttermabolum sem eru orðnir að einkenni mótmælanna. Meira »

14 ára skaut á skólafélaga

Lögregla var með mikinn viðbúnað í bænum Memmingen í Suður-Þýskalandi þegar 14 ára piltur skaut ...
19:47 Fjórtán ára drengur skaut á skólafélaga sína í bænum Memmingen, skammt frá borginni München í Suður-Þýskalandi og hljóp síðan á brott. Honum var veitt eftirför og skaut hann þá nokkrum skotum til viðbótar. Engan sakaði og hefur pilturinn nú verið tekinn höndum og mun sæta geðrannsókn. Meira »

Ummæli prests vekja reiði

Fánar samkynhneigðra blakta á lofti í Gleðigöngunni í Reykjavík. Mannréttindi samkynhneigðra eru ekki alls staðar ...
17:31 Ummæli prests baptistasöfnuðar í Norður-Karólínuríki í Bandaríkjunum um að safna ætti öllu samkynhneigðu fólki saman, reka það inn í rétt og láta það síðan deyja drottni sínum, hafa vakið mikla reiði víða. Presturinn lét svo ummælt í predikun sem tekin var upp á myndband og síðan sett á YouTube. Meira »

Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift

17:00 Þrjátíu pör sem gefin voru saman fyrir um ári með borgaralegum hætti í Uppsölum í Svíþjóð eru enn þrátt fyrir það ógift. Í ljós kom að borgarstjórinn sem gaf pörin saman hafði ekki lengur réttindi til þess þegar brúðkaupin fóru fram. Meira »

Væri upphafið að endalokum evrunnar

Írski þingmaðurinn Richard Boyd Barrett.
19:39 Evrópusambandið mun halda áfram að styðja Írland og veita því neyðaraðstoð ef á þarf að halda jafnvel þó að írskir kjósendur hafni fjármálastöðugleikasáttmála sambandsins. Meira »

Gríski harmleikurinn heldur áfram

Christine Lagarde, framkvæmdastjóri AGS.
17:10 Christine Lagarde, framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, segir að vinstriflokkarnir í Grikklandi verði að horfast í augu við þann niðurskurð sem nauðsynlegur sé, eigi Grikkir að komast upp úr þeim efnahagslega öldudal sem þeir eru nú í. Meira »

Neyðarástand á Ítalíu

Íbúðarhús sem skemmdist í jarðskjálftanum í bænum Finale Emila skammt frá borginni Modena.
16:46 Neyðarástandi hefur verið lýst yfir á norðaustur Ítalíu, þar sem öflugur jarðskjálfti sem mældist 6 stig, reið yfir í fyrradag. Um 5000 manns eru heimilislausir eftir að fjöldi íbúðarhúsa skemmdist í skjálftanum og ítalska ríkisstjórnin hefur lofað því að fé verði veitt til uppbyggingar. Meira »

Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó

Á hverju ári eru um 100.000 konur í Suður-Ameríku seldar mansali milli landa.
16:15 Á hverju ári eru þúsundir kvenna þvingaðar í vændi og seldar frá Mexíkó til Bandaríkjanna. Í úttekt BBC á mansali í Mexíkó kemur fram að stúlkurnar séu flestar á aldrinum 14-19 ára og séu þvingaðar til að þjónusta 25-30 karla á hverri vakt. Flestar eru sendar til New York. Meira »

Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn

Zikovs skaut Egle, sem var óvopnaður, þrisvar sinnum. Með Egle í för var ung dóttir ...
15:52 Héraðsdómstóll í Lettlandi hefur dæmt mann í 17 ára fangelsi fyrir að hafa skotið mann til bana í kvikmyndahúsi. Lögfræðingurinn Nikolajs Zikovs skaut bankastarfsmanninn Aigars Egle til bana í kjölfar rifrildis, en Zikovs þótti Egle hafa of hátt þegar hann var að borða poppkorn. Meira »

Kæfðu dóttur sína með plastpoka

Shafilea Ahmed.
16:09 Foreldrar breskrar stúlku hafa verið ákærðir fyrir að kæfa dóttur sína með því að troða plastpoka upp í hana og kæfa hana. Fjögur börn þeirra horfðu upp á systur sína myrta, en í dag lýsti eitt þeirra fyrir dómi því sem gerðist þegar stúlkan lést. Meira »

Stuðningur eykst við jafnaðarmenn

Angela Merkel, kanslari Þýskalands.
15:51 Stuðningur við þýska jafnaðarmenn hefur aukist verulega samkvæmt nýrri skoðanakönnun fyrir dagblaðið Bild en samkvæmt henni mælast þeir nú með 32% fylgi á meðan helsti keppinauturinn, kristilegir demókratar undir forystu Angelu Merkel kanslara Þýskalands, mælist með 33%. Meira »

Mótmæli kveðin niður í Bakú

Júróvisjón söngvakeppnin fer ekki framhjá neinum sem staddur er í Bakú í Aserbaídsjan, en mótmæli ...
15:16 Allra augu í Evrópu verða á Aserbaídsjan í kvöld, þegar fyrri forkeppni Júróvisjón söngkeppninnar fer fram í Bakú. Raddir mótmælenda þar í landi heyrast hins vegar ekki víða. Í gærkvöldi stöðvaði lögregla í Bakú af hörku um 100 mótmælendur sem kröfðust m.a. frelsun pólitískra fanga. Meira »

Tók 7 ára stúlku í gíslingu

15:14 Tékknesk kona gekk inn í skóla í borginni Havirov, stakk kennara nokkrum sinnum með hníf og tók sjö ára stúlku í gíslingu. Lögreglan handtók hana skömmu síðar. Meira »

Mótmæla niðurskurði til menntamála

13:54 Spænskum skólum hefur verið lokað í dag í mótmælaskyni, en þetta á jafnt við grunn- framhalds- og háskóla. Nemendur, foreldrar og kennarar hafa komið saman til að mótmæla aðhaldsaðgerðum stjórnvalda, en þau hyggjast skera niður útgjöld til menntamála. Meira »

Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands

15:16 Þjóðaratkvæðagreiðsla um svonefndan fjármálastöðugleikasáttmála innan Evrópusambandsins fer fram á Írlandi 31. maí næstkomandi en Írar eru einir þjóða innan sambandsins sem munu kjósa um sáttmálann, sem ætlað er að stuðla að efnahagslegum stöðugleika á evrusvæðinu og auknum samruna innan þess, þar sem írska stjórnarskráin krefst þess. Meira »

Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik

Anders Behring Breivik lítur yfir áhorfendur í dómssalnum í Ósló.
13:59 Ungmenni sem lifðu af fjöldamorðin í Útey halda áfram að bera vitni gegn Anders Behring Breivik í dag. Þ.á.m. er 18 ára gamall piltur sem missti annað augað. Hann sló á létta strengi og sagði að það kæmi sér ágætleg þarna, „þá slepp ég við að horfa þangað" sagði hann og benti í átt að Breivik. Meira »

„Eins og atriði úr bíómynd“

Ásdís Rán Gunnarsdóttir vaknaði við jarðskjálfta í Sofíu kl. 3 í nótt.
13:30 „Þetta var alveg rosalegt. Ég vakna við að ég flýg fram úr rúminu, það var eins og húsið og jörðin væru að rifna í sundur. Ég hef aldrei upplifað svona áður,“ segir athafnakonan Ásdís Rán Gunnarsdóttir en harður jarðskjálfti varð í Búlgaríu í nótt. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Fellihýsi til sölu
Palamino Colt 9 ft. árg. 2007. Fortjald, svefntjöld, hitamiðstöð, ísskápur o.fl....
Myndir til sölu
Fallegar leirmyndir til sölu. Seljast báðar á 2.500 kr. Upplýsingar í síma 863-7...
Útilegudót óskast
Óska eftir að kaupa GAS-hitara, kælibox fyrir 220V/12V ekki mjög lítið og fleira...
Garmin Nuvi 1490T GPS tæki til sölu
Raddleiðsögn 5,0'' snertiskjár, umferðamóttakari, akgreinavísir, bluetooth, hand...
 
Sýslumaðurinn á selfossi - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Sölumaður / skjalagerð
Sérfræðistörf
Fasteignasala Rótgróin og traust fasteig...
Umsjónarkennsla - sérkennsla - textílkennsla - þroskaþjálfi
Grunn-/framhaldsskóla
Lausar stöður við Grunnskóla Hornaf...
12836 fellahverfi útboð

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...