Telja að Madeleine hafi verið flutt til Spánar

Gerry og Kate McCann á blaðamannafundi í Madrid í morgun.
Gerry og Kate McCann á blaðamannafundi í Madrid í morgun. Reuters

Gerry og Kate McCann, foreldrar Madeleine McCann, 4 ára stúlku sem hvarf nýlega í Portúgal, eru á ferð um nokkur Evrópuríki til að vekja athygli á örlögum dóttur sinnar í þeirri von um að upplýsingar berist um hvar hún kann að vera niðurkomin. Foreldrarnir komu fram á blaðamannafundi í Madrid á Spáni í dag en í gær gengu þau á fund Benedikts páfa í Róm.

Þau Gerry og Kate sögðu á fundinum í Madrid, að þau lifðu í þeirri von, að sá eða þeir sem hefðu rænt dóttur þeirra myndu skilja hana eftir í kirkju eða á öðrum öruggum stað.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert