Yasmin pillan valdi frekar blóðtappa

Getnaðarvarnapillur, sem taldar eru að auki hættu á myndun blóðtappa.

Getnaðarvarnapillur, sem taldar eru að auki hættu á myndun blóðtappa. Kristinn Ingvarsson

Fréttaþáttur á dönsku sjónvarpsstöðinni TV2, þar sem fjallað var um skaðsemi p-pillunnar Yasmin, veldur nú miklu fjaðrafoki þar í landi. Um er að ræða mest notuðu getnaðarvarnarpillu Danmerkur, en talið er að um 350.000 konur noti hana. Í þættinum var reynt að sýna fram á að Yasmin pillan væri skaðlegri en aðrar tegundir og hafi leitt tvær stúlkur til dauða af völdum blóðtappa. Læknar og aðrir sérfræðingar hafa staðfest þann grun, en lyfjaeftirlitið segir blóðtappa þekkta aukaverkun p-pilla og Yasmin sé þar engin undantekning. Þetta kemur fram á fréttavef Politiken í dag.

Hollenski prófessorinn Frits Rosendahl segir í þættinum að tölurnar sem komi þar fram séu athyglisverðar „Í fyrsta sinn liggja nú fyrir klínískar niðurstöður um fólk sem hefur orðið veikt, og það staðfestir grun okkar um það það gæti mögulega eitthvað verið að Yasmin.“ Yfirlæknir sjúkrahússins í Esbjerg er honum sammála. Þar hafi komið upp fleiri atvik þar sem konur sem taki inn Yasmin pilluna hafi verið lagðar inn vegna blóðtappa.

Á heimasíðu danska lyfjaeftirlitsins kemur fram að blóðtappi sé þekkt aukaverkun og Yasmin pillan valdi ekki oftar blóðtappa heldur en aðrar sambærilegar tegundir. Lyfjafyrirtækið Bayer-Schering, sem býr til Yasmin pilluna, vildi ekki taka þátt í gerð sjónvarpsþáttar TV2, en vísaði til þýskrar rannsóknar sem sýndi fram á að Yasmin valdi ekki oftar blóðtappa heldur en aðrar tegundir.

Tveir stjórnmálaflokkar, Kristlegir demókratar og Enhedslisten, hafa krafist þess að getnaðarvörnin verði tekin úr sölu þar til frekari rannsóknir hafa farið fram.

Yasmin pillan er ein algengasta getnaðarvarnarpillan á Íslandi. Hjá Lyfjaeftirlitinu fengust þær upplýsingar að hún sé notuð í um 20 prósent tilvika. Skráning á aukaverkunum lyfja á Íslandi er ekki mikil og því lítið vitað um það hversu algengar þær eru. Á heimasíðu Lyfju er blóðtappi ekki nefndur sem algeng aukaverkun Yasmin, en þar stendur að „reykingar auki hættuna á aukaverkunum, s.s. blóðtappa af völdum estrógena.“

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent »

Ein af flugvélum bandaríska flugfélagsins US Airways.

Sagðist vera með sprengju í líkamanum

20:32 Bandarískri farþegaflugvél flugfélagsins US Airways, sem var á leiðinni frá París til borgarinnar Charlotte í Norður-Karólínuríki í Bandaríkjunum var lent snarlega eftir að frönsk kona sem var farþegi um borð, sagðist vera með „ígræddan búnað“ sem gæti grandað vélinni. Meira »
Frá mótmælunum á Spáni í dag.

Kennarar og nemendur mótmæla

20:09 Tugþúsundir kennara og nemenda á Spáni mótmæltu í dag fyrirhuguðum niðurskurði í menntamálum í landinu. Fólkið lagði niður störf og gekk fylktu liði um götur og stræti Spánar, margir í grænum stuttermabolum sem eru orðnir að einkenni mótmælanna. Meira »

14 ára skaut á skólafélaga

Lögregla var með mikinn viðbúnað í bænum Memmingen í Suður-Þýskalandi þegar 14 ára piltur skaut ...
19:47 Fjórtán ára drengur skaut á skólafélaga sína í bænum Memmingen, skammt frá borginni München í Suður-Þýskalandi og hljóp síðan á brott. Honum var veitt eftirför og skaut hann þá nokkrum skotum til viðbótar. Engan sakaði og hefur pilturinn nú verið tekinn höndum og mun sæta geðrannsókn. Meira »

Ummæli prests vekja reiði

Fánar samkynhneigðra blakta á lofti í Gleðigöngunni í Reykjavík. Mannréttindi samkynhneigðra eru ekki alls staðar ...
17:31 Ummæli prests baptistasöfnuðar í Norður-Karólínuríki í Bandaríkjunum um að safna ætti öllu samkynhneigðu fólki saman, reka það inn í rétt og láta það síðan deyja drottni sínum, hafa vakið mikla reiði víða. Presturinn lét svo ummælt í predikun sem tekin var upp á myndband og síðan sett á YouTube. Meira »

Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift

17:00 Þrjátíu pör sem gefin voru saman fyrir um ári með borgaralegum hætti í Uppsölum í Svíþjóð eru enn þrátt fyrir það ógift. Í ljós kom að borgarstjórinn sem gaf pörin saman hafði ekki lengur réttindi til þess þegar brúðkaupin fóru fram. Meira »

Væri upphafið að endalokum evrunnar

Írski þingmaðurinn Richard Boyd Barrett.
19:39 Evrópusambandið mun halda áfram að styðja Írland og veita því neyðaraðstoð ef á þarf að halda jafnvel þó að írskir kjósendur hafni fjármálastöðugleikasáttmála sambandsins. Meira »

Gríski harmleikurinn heldur áfram

Christine Lagarde, framkvæmdastjóri AGS.
17:10 Christine Lagarde, framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, segir að vinstriflokkarnir í Grikklandi verði að horfast í augu við þann niðurskurð sem nauðsynlegur sé, eigi Grikkir að komast upp úr þeim efnahagslega öldudal sem þeir eru nú í. Meira »

Neyðarástand á Ítalíu

Íbúðarhús sem skemmdist í jarðskjálftanum í bænum Finale Emila skammt frá borginni Modena.
16:46 Neyðarástandi hefur verið lýst yfir á Norðaustur-Ítalíu, þar sem öflugur jarðskjálfti sem mældist 6 stig, reið yfir í fyrradag. Um 5.000 manns eru heimilislaus eftir að fjöldi íbúðarhúsa skemmdist í skjálftanum og ítalska ríkisstjórnin hefur lofað því að fé verði veitt til uppbyggingar. Meira »

Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó

Á hverju ári eru um 100.000 konur í Suður-Ameríku seldar mansali milli landa.
16:15 Á hverju ári eru þúsundir kvenna þvingaðar í vændi og seldar frá Mexíkó til Bandaríkjanna. Í úttekt BBC á mansali í Mexíkó kemur fram að stúlkurnar séu flestar á aldrinum 14-19 ára og séu þvingaðar til að þjónusta 25-30 karla á hverri vakt. Flestar eru sendar til New York. Meira »

Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn

Zikovs skaut Egle, sem var óvopnaður, þrisvar sinnum. Með Egle í för var ung dóttir ...
15:52 Héraðsdómstóll í Lettlandi hefur dæmt mann í 17 ára fangelsi fyrir að hafa skotið mann til bana í kvikmyndahúsi. Lögfræðingurinn Nikolajs Zikovs skaut bankastarfsmanninn Aigars Egle til bana í kjölfar rifrildis, en Zikovs þótti Egle hafa of hátt þegar hann var að borða poppkorn. Meira »

Kæfðu dóttur sína með plastpoka

Shafilea Ahmed.
16:09 Foreldrar breskrar stúlku hafa verið ákærðir fyrir að kæfa dóttur sína með því að troða plastpoka upp í hana og kæfa hana. Fjögur börn þeirra horfðu upp á systur sína myrta, en í dag lýsti eitt þeirra fyrir dómi því sem gerðist þegar stúlkan lést. Meira »

Stuðningur eykst við jafnaðarmenn

Angela Merkel, kanslari Þýskalands.
15:51 Stuðningur við þýska jafnaðarmenn hefur aukist verulega samkvæmt nýrri skoðanakönnun fyrir dagblaðið Bild en samkvæmt henni mælast þeir nú með 32% fylgi á meðan helsti keppinauturinn, kristilegir demókratar undir forystu Angelu Merkel kanslara Þýskalands, mælist með 33%. Meira »

Mótmæli kveðin niður í Bakú

Júróvisjón söngvakeppnin fer ekki framhjá neinum sem staddur er í Bakú í Aserbaídsjan, en mótmæli ...
15:16 Allra augu í Evrópu verða á Aserbaídsjan í kvöld, þegar fyrri forkeppni Júróvisjón söngkeppninnar fer fram í Bakú. Raddir mótmælenda þar í landi heyrast hins vegar ekki víða. Í gærkvöldi stöðvaði lögregla í Bakú af hörku um 100 mótmælendur sem kröfðust m.a. frelsun pólitískra fanga. Meira »

Tók 7 ára stúlku í gíslingu

15:14 Tékknesk kona gekk inn í skóla í borginni Havirov, stakk kennara nokkrum sinnum með hníf og tók sjö ára stúlku í gíslingu. Lögreglan handtók hana skömmu síðar. Meira »

Mótmæla niðurskurði til menntamála

13:54 Spænskum skólum hefur verið lokað í dag í mótmælaskyni, en þetta á jafnt við grunn- framhalds- og háskóla. Nemendur, foreldrar og kennarar hafa komið saman til að mótmæla aðhaldsaðgerðum stjórnvalda, en þau hyggjast skera niður útgjöld til menntamála. Meira »

Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands

15:16 Þjóðaratkvæðagreiðsla um svonefndan fjármálastöðugleikasáttmála innan Evrópusambandsins fer fram á Írlandi 31. maí næstkomandi en Írar eru einir þjóða innan sambandsins sem munu kjósa um sáttmálann, sem ætlað er að stuðla að efnahagslegum stöðugleika á evrusvæðinu og auknum samruna innan þess, þar sem írska stjórnarskráin krefst þess. Meira »

Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik

Anders Behring Breivik lítur yfir áhorfendur í dómssalnum í Ósló.
13:59 Ungmenni sem lifðu af fjöldamorðin í Útey halda áfram að bera vitni gegn Anders Behring Breivik í dag. Þ.á.m. er 18 ára gamall piltur sem missti annað augað. Hann sló á létta strengi og sagði að það kæmi sér ágætleg þarna, „þá slepp ég við að horfa þangað" sagði hann og benti í átt að Breivik. Meira »

„Eins og atriði úr bíómynd“

Ásdís Rán Gunnarsdóttir vaknaði við jarðskjálfta í Sofíu kl. 3 í nótt.
13:30 „Þetta var alveg rosalegt. Ég vakna við að ég flýg fram úr rúminu, það var eins og húsið og jörðin væru að rifna í sundur. Ég hef aldrei upplifað svona áður,“ segir athafnakonan Ásdís Rán Gunnarsdóttir en harður jarðskjálfti varð í Búlgaríu í nótt. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Honda CR-V 2008 Til Sölu
Til sölu Honda Cr-v skráð 10.1.2008 Ekin 90.xxx þ km. Með öllum aukabúnaði nem...
SANDBLÁSTURFILMUR
Sandblásturfilmur í öllum stærðum og gerðum fyrir heimili og fyrirtæki. Sendið f...
PARSUN - UTANBORÐSMÓTORAR - GÆÐI Í GEGN
Eigum á lager á góðu verði eftirfarandi stærðir: 2,6 hp kr. 179.000 5 hp kr. ...
Skógarmenn - Vatnaskógur kallar !!
Gamlir og ungir Skógarmenn. Tökum höndum saman og stiðjum við starfið í Vatnaskó...
 
Farþegaskipið moby dick til sölu

Moby Dick til sölu Farþegaskipið Moby...
Til sölu m-bens e-200

Til sölu M-BENS E-200 Árgerð...
Director of the administration division
Stjórnunarstörf
The European Free Trade Association is c...
Samkoma sunnudagur
Félagsstarf
Sunnudagur Kl. 11.00 Samkoma o...