Bágar aðstæður íraskra flóttamanna

4 milljónir Íraka hafa þurft að flýja heimili sín vegna ofbeldis í landinu.

4 milljónir Íraka hafa þurft að flýja heimili sín vegna ofbeldis í landinu. Þorkell Þorkelsson

Rúmlega fjórar milljónir Íraka hafa nú þurft að yfirgefa heimili sín vegna ofbeldis í landinu, segir Flóttamannastofnun Sameinuðu Þjóðanna. Hún varar við því að sú tala muni hækka meðan yfirvöld í Írak reyni að útvega mat og heilbrigðisþjónustu undir bágbornum öryggisaðstæðum.

Fjöldi íraskra flóttamanna í öðrum löndum eru nú um 2.2 milljónir að sögn Jennifer Pagonis, talskonu flóttamannanefndar SÞ. Aðrar tvær milljónir sem flúið hafa heimili sín eru enn staðsettar í landinu, í sífellt fátæklegri kofabyggðum.

Pagonis segir flóttamannanefndina fá „truflandi fréttir“ af yfirvöldum einstaka héraða sem gera lítið til þess að útvega flóttamönnum mat, húsaskjól eða aðra grunnþjónustu. Rúmlega helmingur átján héraðsstjóra í Írak reyna koma í veg fyrir að húsnæðislaust fólk flytji inn á þeirra svæði með því að stoppa það við eftirlitsstöðvar eða neita því um mataraðstoð og aðra grunnþjónustu.

Eftirlitsstöðvum fjölgar í norðurhéruðum Íraks, sérstaklega meðfram „grænu línunni“ sem markar skilin milli kúrdískra svæða og annarra. Flóttamenn eru einnig stoppaðir á vegunum til borganna Karbala og Najaf, suður af Bahdad, sem álitnar eru heilagar af Shia múslimum. Þótt eftirlitsstöðvarnar hafi upphaflega verið settar á laggirnar af öryggisástæðum eru þær í auknum mæli notaðar til þess að hindra húsnæðislausa Íraka í því að ferðast um landið.

Nauðflutningur úr opinberum byggingum er algengur, bætir Pagonis við og helmingur allra húsnæðislausra hefur engan aðgang að opinberum matardreifingum.

Hún segir um 30.000 Íraka flýja til Sýrlands í hverjum mánuði, sem hýsir nú 1,4 milljónir íraskra flóttamanna. Önnur 750,000 hafa flúið til Jórdaníu. Nágrannalönd Íraks hafa tekið við flóttamönnum, en fáum Írökum hefur verið boðið til annarra landi, sérstaklega fáum til Evrópu. Bandaríska ríkisstjórnin hefur lofað því að leyfa 7,000 Írökum að setjast að í Bandaríkjunum og fjárhagsaðstoð við nágrannaríki Íraks sem taka á móti flóttafólki.

Flóttamannanefnd Sameinuðu þjóðanna vonast að útvega 20,000 Írökum heimili á árinu.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent »

Ein af flugvélum bandaríska flugfélagsins US Airways.

Sagðist vera með sprengju í líkamanum

20:32 Bandarískri farþegaflugvél flugfélagsins US Airways, sem var á leiðinni frá París til borgarinnar Charlotte í Norður-Karólínuríki í Bandaríkjunum var lent snarlega eftir að frönsk kona sem var farþegi um borð, sagðist vera með „ígræddan búnað“ sem gæti grandað vélinni. Meira »
Frá mótmælunum á Spáni í dag.

Kennarar og nemendur mótmæla

20:09 Tugþúsundir kennara og nemenda á Spáni mótmæltu í dag fyrirhuguðum niðurskurði í menntamálum í landinu. Fólkið lagði niður störf og gekk fylktu liði um götur og stræti Spánar, margir í grænum stuttermabolum sem eru orðnir að einkenni mótmælanna. Meira »

14 ára skaut á skólafélaga

Lögregla var með mikinn viðbúnað í bænum Memmingen í Suður-Þýskalandi þegar 14 ára piltur skaut ...
19:47 Fjórtán ára drengur skaut á skólafélaga sína í bænum Memmingen, skammt frá borginni München í Suður-Þýskalandi og hljóp síðan á brott. Honum var veitt eftirför og skaut hann þá nokkrum skotum til viðbótar. Engan sakaði og hefur pilturinn nú verið tekinn höndum og mun sæta geðrannsókn. Meira »

Ummæli prests vekja reiði

Fánar samkynhneigðra blakta á lofti í Gleðigöngunni í Reykjavík. Mannréttindi samkynhneigðra eru ekki alls staðar ...
17:31 Ummæli prests baptistasöfnuðar í Norður-Karólínuríki í Bandaríkjunum um að safna ætti öllu samkynhneigðu fólki saman, reka það inn í rétt og láta það síðan deyja drottni sínum, hafa vakið mikla reiði víða. Presturinn lét svo ummælt í predikun sem tekin var upp á myndband og síðan sett á YouTube. Meira »

Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift

17:00 Þrjátíu pör sem gefin voru saman fyrir um ári með borgaralegum hætti í Uppsölum í Svíþjóð eru enn þrátt fyrir það ógift. Í ljós kom að borgarstjórinn sem gaf pörin saman hafði ekki lengur réttindi til þess þegar brúðkaupin fóru fram. Meira »

Væri upphafið að endalokum evrunnar

Írski þingmaðurinn Richard Boyd Barrett.
19:39 Evrópusambandið mun halda áfram að styðja Írland og veita því neyðaraðstoð ef á þarf að halda jafnvel þó að írskir kjósendur hafni fjármálastöðugleikasáttmála sambandsins. Meira »

Gríski harmleikurinn heldur áfram

Christine Lagarde, framkvæmdastjóri AGS.
17:10 Christine Lagarde, framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, segir að vinstriflokkarnir í Grikklandi verði að horfast í augu við þann niðurskurð sem nauðsynlegur sé, eigi Grikkir að komast upp úr þeim efnahagslega öldudal sem þeir eru nú í. Meira »

Neyðarástand á Ítalíu

Íbúðarhús sem skemmdist í jarðskjálftanum í bænum Finale Emila skammt frá borginni Modena.
16:46 Neyðarástandi hefur verið lýst yfir á Norðaustur-Ítalíu, þar sem öflugur jarðskjálfti sem mældist 6 stig, reið yfir í fyrradag. Um 5.000 manns eru heimilislaus eftir að fjöldi íbúðarhúsa skemmdist í skjálftanum og ítalska ríkisstjórnin hefur lofað því að fé verði veitt til uppbyggingar. Meira »

Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó

Á hverju ári eru um 100.000 konur í Suður-Ameríku seldar mansali milli landa.
16:15 Á hverju ári eru þúsundir kvenna þvingaðar í vændi og seldar frá Mexíkó til Bandaríkjanna. Í úttekt BBC á mansali í Mexíkó kemur fram að stúlkurnar séu flestar á aldrinum 14-19 ára og séu þvingaðar til að þjónusta 25-30 karla á hverri vakt. Flestar eru sendar til New York. Meira »

Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn

Zikovs skaut Egle, sem var óvopnaður, þrisvar sinnum. Með Egle í för var ung dóttir ...
15:52 Héraðsdómstóll í Lettlandi hefur dæmt mann í 17 ára fangelsi fyrir að hafa skotið mann til bana í kvikmyndahúsi. Lögfræðingurinn Nikolajs Zikovs skaut bankastarfsmanninn Aigars Egle til bana í kjölfar rifrildis, en Zikovs þótti Egle hafa of hátt þegar hann var að borða poppkorn. Meira »

Kæfðu dóttur sína með plastpoka

Shafilea Ahmed.
16:09 Foreldrar breskrar stúlku hafa verið ákærðir fyrir að kæfa dóttur sína með því að troða plastpoka upp í hana og kæfa hana. Fjögur börn þeirra horfðu upp á systur sína myrta, en í dag lýsti eitt þeirra fyrir dómi því sem gerðist þegar stúlkan lést. Meira »

Stuðningur eykst við jafnaðarmenn

Angela Merkel, kanslari Þýskalands.
15:51 Stuðningur við þýska jafnaðarmenn hefur aukist verulega samkvæmt nýrri skoðanakönnun fyrir dagblaðið Bild en samkvæmt henni mælast þeir nú með 32% fylgi á meðan helsti keppinauturinn, kristilegir demókratar undir forystu Angelu Merkel kanslara Þýskalands, mælist með 33%. Meira »

Mótmæli kveðin niður í Bakú

Júróvisjón söngvakeppnin fer ekki framhjá neinum sem staddur er í Bakú í Aserbaídsjan, en mótmæli ...
15:16 Allra augu í Evrópu verða á Aserbaídsjan í kvöld, þegar fyrri forkeppni Júróvisjón söngkeppninnar fer fram í Bakú. Raddir mótmælenda þar í landi heyrast hins vegar ekki víða. Í gærkvöldi stöðvaði lögregla í Bakú af hörku um 100 mótmælendur sem kröfðust m.a. frelsun pólitískra fanga. Meira »

Tók 7 ára stúlku í gíslingu

15:14 Tékknesk kona gekk inn í skóla í borginni Havirov, stakk kennara nokkrum sinnum með hníf og tók sjö ára stúlku í gíslingu. Lögreglan handtók hana skömmu síðar. Meira »

Mótmæla niðurskurði til menntamála

13:54 Spænskum skólum hefur verið lokað í dag í mótmælaskyni, en þetta á jafnt við grunn- framhalds- og háskóla. Nemendur, foreldrar og kennarar hafa komið saman til að mótmæla aðhaldsaðgerðum stjórnvalda, en þau hyggjast skera niður útgjöld til menntamála. Meira »

Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands

15:16 Þjóðaratkvæðagreiðsla um svonefndan fjármálastöðugleikasáttmála innan Evrópusambandsins fer fram á Írlandi 31. maí næstkomandi en Írar eru einir þjóða innan sambandsins sem munu kjósa um sáttmálann, sem ætlað er að stuðla að efnahagslegum stöðugleika á evrusvæðinu og auknum samruna innan þess, þar sem írska stjórnarskráin krefst þess. Meira »

Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik

Anders Behring Breivik lítur yfir áhorfendur í dómssalnum í Ósló.
13:59 Ungmenni sem lifðu af fjöldamorðin í Útey halda áfram að bera vitni gegn Anders Behring Breivik í dag. Þ.á.m. er 18 ára gamall piltur sem missti annað augað. Hann sló á létta strengi og sagði að það kæmi sér ágætleg þarna, „þá slepp ég við að horfa þangað" sagði hann og benti í átt að Breivik. Meira »

„Eins og atriði úr bíómynd“

Ásdís Rán Gunnarsdóttir vaknaði við jarðskjálfta í Sofíu kl. 3 í nótt.
13:30 „Þetta var alveg rosalegt. Ég vakna við að ég flýg fram úr rúminu, það var eins og húsið og jörðin væru að rifna í sundur. Ég hef aldrei upplifað svona áður,“ segir athafnakonan Ásdís Rán Gunnarsdóttir en harður jarðskjálfti varð í Búlgaríu í nótt. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
PAPILLON TIL SÖLUERUM MEÐ YNDISLEGA PAPI
Papillon til sölu Erum með yndislega Papillon hvolpa til sölu. Kíktu ...
NÝJAR VÖRUR Í HVERRI VIKU
FLOTTUR BARNAFATNAÐUR Á FRÁBÆRU VERÐI - ERTU BÚIN AÐ KÍKJA? http://www.123budin...
HÚSGÖGN, HEIMILISTÆKI, SKRAUTMUNIR OG FLEIRA TIL SÖLU.
Allar upplýsingar, verð og myndir eru á heimasíðunni: http://husgogn.net Hægt e...
Heil/parta nudd sniðið að þínum þörfum.
Lúxus dekur þar sem þú velur áherslusvæði t.d. herðar, herðablöð, háls, axilir, ...
 
12834 stofnstígur útboð

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
Sýslumaðruinn á ísafirði - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Akstur fyrir strætó

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
Bílar ríkiskaup - tilboð óskast

Tilboð óskast í eftirtaldar bifreiðar og...