„Ég er að breytast í dýr sem langar að deyja"
Stanislawa Sapinska. Reuters
Laskier bjó í gyðingagettói í Bedzin, skammt frá Auschwitz, og skömmu eftir að hún hætti að skrifa í bókina var hún flutt þangað í útrýmingarbúðir þar sem hún var tekin af lífi. Vinkona hennar, Stanislawa Sapinska, hafði falið bókina og geymt frá stríðslokum, en gaf hana í gær til Helfararsafnsins í Ísrael.
"Snaran herðist um hálsinn á okkur," skrifaði Laskier í einni færslunni, skömmu áður en hún var flutt til Auschwitz. "Ég er að breytast í dýr sem langar að deyja." Fáeinum mánuðum síðar var hún látin.
Um sex milljónir gyðinga voru myrtar af nasistum í síðari heimsstyrjöldinni. Áður en gyðingarnir voru fluttir í útrýmingarbúðir á borð við Auschwitz voru þeir lokaðir inni í sérstökum hverfum, svonefndum gettóum, og bannað að hafa vinnu og neyddir til að bera gula stjörnu á arminum til auðkenningar.
"Ég trúi því ekki að einn daginn fáum við að fara út úr þessu húsi án gulu stjörnunnar. Að þessu stríði mun dag einn ljúka. Ef það gerist mun ég líklega missa vitið af gleði," skrifaði Laskier 5. febrúar 1943.
En hún skrifaði ekki aðeins um hrylling stríðsins heldur einnig um stráka sem hún var skotin í og hvernig hún fann til löngunar til að einhver snerti sig. En sama dag sagði hún einnig frá því að hún hefði séð nasistahermann taka gyðingabarn af móður þess og myrða það með berum höndum.
Laskier hélt dagbókina frá því í janúar og fram í apríl 1943. Hún sýndi hana vinkonu sinni, Sapinska, sem nú er á níræðisaldri, og þegar Laskier lét í ljósi ótta um að dagbókin myndi glatast bauðst Sapinska til að fela hana undir gólffjölum í kjallaranum í húsinu sem þær áttu heima í. Þegar stríðin var lokið endurheimti Sapinska bókina.
"Hún vildi að ég bjargaði bókinni," sagði Sapinska í gær. "Hún sagði: Ég veit ekki hvort ég lifi af, en ég vil að dagbókin glatist ekki, svo að allir geti fengið að vita hvað kom fyrir gyðingana."
Bloggað um fréttina
-
Matthilda M. Eyvindsd Tórshamar Má aldrei gleymast -
Magnús Jónsson Hryggð -
Níels A. Ársælsson. Helför kvótakerfisins á Vestfjörðum -
Vilborg Traustadóttir Menn eru dýr -
Sigurjón Sveinsson Viðeigandi að gefa bókina í Ísrael -
Erlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- Fordæma morð á óbreyttum borgurum
- Háaldraður stríðsglæpamaður látinn
- Hertar innflytjendareglur ef evran hrynur
- Skaut af handahófi
- Vill endurvekja egypsku byltinguna
- Gómuðu gengi hjólaþjófa
- Pútín fagnar bróður í anda
-
Lokaæfingar í Bakú
- Jarðsett 20 árum eftir dauðann
- Bakúbúar í startholunum
- Medvedev formaður Sameinaðs Rússlands
- Tveir létust í árás í Finnlandi
- Kennurum voru sýnd kynfæri nemenda
- Segja kjarnorkutilraunir friðsamlegar
- Skothríð í Finnlandi
- Segja fjöldamorð framið í Sýrlandi
- Vill fyrir Mannréttindadómstólinn
- Áframhaldandi mótmæli í Sýrlandi
- Úran í Íran auðugra en talið var
- „Duglegasti“ Eurovision keppandinn
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
- Fær 3.000 ár til að borga skattaskuld
- Starfsmaður Vatíkansins handtekinn
- Þjóðverjar vilja Grikki af evrusvæðinu
- Ferrari innkallar 56 bíla
- Breivik vildi plástur á fingurinn
- Meirihluti Skota andvígur sjálfstæði
- Vill að viðskiptaþvingunum verði aflétt
- Mursi mæti Shafiq
- Fangar ósáttir við óhrein hnífapör
- Tókst að góma flóttamörgæsina 337
- Skaut son sinn og framdi síðar sjálfsvíg
- Veitir fjölskyldunni vonandi einhvern frið
- Meintur fjöldamorðingi í haldi
- Búsáhaldabylting í Quebec
- Stjórnendur Rena dæmdir í fangelsi
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
- Hollande í Afganistan
- Jarðskjálfti í Christchurch
- Sýrland
- Skuldavandi Grikklands
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 12. október 2006, Erlent Fyrrum danskur SS-liði hugsanlega framseldur til heimalandsins
- Mánudagur, 22. október 2007, Erlent Póstkortið var 64 ár á leiðinni
- Fimmtudagur, 17. apríl 2008, Erlent Skipulagði tilræðið mánuðum saman
- Laugardagur, 16. febrúar 2008, Erlent Sarkozy harðlega gagnrýndur
- Þriðjudagur, 28. ágúst 2007, Erlent Sonardóttir Stalíns látin í Moskvu
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju


































