Sjö börn létu lífið í loftárás í Afganistan

Sjö börn létu lífið í loftárás bandarískra hersveita á byggingar í austurhluta Afganistan þar sem talið var að al-Qaedaliðar væru í felum. Í yfirlýsingu frá Bandaríkjaher segir að ótilgreindur fjöldi vígamanna hafi einnig fallið í árásinni.

Í yfirlýsingunni segir, að talið sé að börnin hafi verið nemendur í íslömskum skóla, sem rekinn var í byggingunni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert