Á annan tug fórst í eldsvoða í Rússlandi

Að minnsta kosti 11 manns létu lífið í dag þegar eldur kom upp á elliheimili í Omskhéraði í Síberíu í Rússlandi að sögn RIA-Novotsi fréttastofunnar. Sextán manns er enn saknað en bjarga tókst um 300 manns út úr byggingunni, að því er haft var eftir almannavarnafulltrúum á svæðinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert