Má reka konur í búrkum

Það sést lítið í andlit kvenna sem klæðast búrku.
Það sést lítið í andlit kvenna sem klæðast búrku. Reuters

Fyrir um mánuði síðan vildi leikskólastjóri í Árósum reka starfsmann sem hóf skyndilega að ganga í búrku þegar hann tók múslimatrú. Ástæðan sem gefin var fyrir uppsögninni var sú að börnin sæju ekki vel andlit starfsmannsins og gætu því ekki átt í eðlilegum samskiptum við hann. Þetta kemur fram á fréttavef Politiken í dag.

Starfsmaðurinn er kona, dönsk að uppruna, svo að sögn leikskólastjórans er tungumál eða menningarmunur er ekki vandamál í þessu tilfelli. Það hefur tekið langan tíma að fá úr því skorið hvort kommúnunni sé stætt á því að reka konuna á þeim forsendum að hún gangi í búrku.

Nú hefur Carina Christensen, fjölskylduráðherra Danmerkur, staðfest að kommúnan megi reka leikskólakennara ef þeir ganga í fatnaði sem hylur andlit þeirra og hamlar þeim í samskiptum við börnin.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert