Samkomulag milli Þjóðverja og Pólverja um atkvæðavægi innan ESB
Angela Merkel, kanslari Þýskalands, og Lech Kaczynski, forseti Póllands, hafa setið á stífum fundum í Brussel í gær og í dag. AP
Stífar viðræður hafa verið í dag milli Angelu Merkel, kanslara Þýskalands, og Lechs Kaczynzkis og hafa Nicolas Sarkozy, forseti Frakklands, og Valdas Adamkus, forseti Litháens, einnig tekið þátt í viðræðunum en Adamkus talar pólsku reiprennandi. Gert er ráð fyrir að leiðtogarnir fjórir hittist innan skamms á fundi til að ganga endanlega frá samkomulaginu.
Þá eru leiðtogar ESB-ríkjanna einnig sagðir hafa náð samkomulagi um fyrirkomulag embættis yfirmanns utanríkismála ESB. Í drögum að sáttmálanum er fjallað um utanríkisráðherra sambandsins en embættisheitinu hefur verið breytt í utanríkismálafulltrúa ESB.
Pólsk stjórnvöld hótuðu því að beita neitunarvaldi gegn nýja sáttmálanum á leiðtogafundi ESB, sem nú stendur yfir. Pólverjar voru mótfallnir fyrirliggjandi hugmyndum um atkvæðavægi einstakra ríkja innan ESB, sem þeir segja stórum löndum eins og Þýskalandi í hag. Þeir hafa vísað til þess, að íbúar Póllands væru mun fleiri í dag ef ekki hefðu komið til hörmungar seinni heimsstyrjaldar og vilja að tekið sé tillit til þessarar staðreyndar.
Lausnin, sem nú hefur fundist, felst í því að lítill hópur ESB-ríkja, sem saman ráði næstum yfir nógu mörgum atkvæðum til að stöðva tillögur, geti krafist þess að viðkomandi tillaga verði endurskoðuð. Þá er gert ráð fyrir því að nýjar reglur um atkvæðavægi taki gildi árið 2014 en ekki 2009.
Pólverjar hafa einnig krafist þess, að vísan til fjölskyldigilda verði sett inn í nýja sáttmálann.
Bretar hafa gert athugasemdir við drög að sáttmálanum á þeirri forsendu, að þeir vilji ekki afsala sér frekara valdi til Brussel. Tony Blair, forsætisráðherra Breta, sagði nú síðdegis, að talsverður árangur hefði náðst í þessum málum. Hann viðurkenndi þó, að Bretar hefðu gefið eftir gagnvart Frökkum varðandi samkeppnismál en orðalag um að Evrópusambandið vildi koma á óbrenglaðri samkeppni var fjarlægt úr greinargerð með sáttmálanum.
Erlent »
- „Cameron stalst aðeins út fyrir“
- Tollurinn með milljarðamálverk í sinni vörslu
- DNA-próf sannar uppruna þorsks
- Kínverskar eftirlíkingar í bandaríska hernum
- Mannskætt lestarslys
- Einkarekin geimflaug á loft
- Kunnugleg andlit við kjötkatlana
- Fjögur börn létust í sprengjuárás í Írak
- Fimm létust í sprengjuárás í Damaskus
- Glæpir gegn mannkyni í Sýrlandi?
- Táknræn athöfn haldin
- Harður jarðskjálfti í Búlgaríu
Mánudagur, 21.5.2012
- Fimmtungur sett kynferðislegar myndir á netið
-
Frakkar ætla frá Afganistan
- Myrti bróður sinn og sundurlimaði
- Vilja merkja vörur frá Ísrael
-
Egyptar kjósa forseta
- Vonir Le Pens um þingsæti í uppnámi
- Grikkir fá 23% lægri laun
- Varar Breta við íslenskri einangrun
- Margir heimilislausir eftir skjálfta
- Getnir eftir andlát föður og arflausir
- Fimm stjörnu flokkurinn vann sigur
- Dæmdur fyrir upptöku af herbergisfélaga
- Mannskætt rútuslys í Albaníu
- Óttast blóðuga borgarastyrjöld
- Kastaði börnum sínum fram af svölum
- Vilja Grikki áfram á evrusvæðinu
- Vatnið var rautt af blóði
- Þorpið fór á 84,6 milljónir
- Ráðherra til rannsóknar
- „Þið munuð deyja í dag, marxistar“
- Saleh lagður inn á spítala
- 14 aftökur í Íran í dag
- Náðist á upptöku
- Þúsundir hafast við í neyðarskýlum
- „Skrímslið frá Riga“ fékk 18 ára dóm
- Tekur við verðlaununum 16. júní
- Bandaríkjamenn og Pakistanar deila í Chicago
- Bandamenn Pútín í stjórn
- Áfram gert ráð fyrir aðild Grikkja
- Sjálfsmorðsárás í Jemen
- Þrír fórust á Everest
- Strauss-Kahn sakaður um hópnauðgun
- Átök í Líbanon
Sunnudagur, 20.5.2012
-
Serbía stefnir áfram á ESB-aðild
-
Þjóðernissinni með flest atkvæði
-
Frakkar taki þátt með öðrum hætti
- Monti flýtir heimför
- Minnast fórnarlambanna
- Seldu upplýsingar um viðskiptavini
- Kjósa einnig um evruaðild
- Lockerbie-sprengjumaðurinn dáinn
- Sex eru látnir eftir skjálftana
- Birgitta og aðrir aðgerðasinnar lýsa yfir sigri
-
Fjöldamorða minnst á Degi reiðinnar
- Skuldavandi Grikklands
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Sýrland
- News of the World
- Strauss-Kahn handtekinn
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 22. júní 2007, Erlent Pólverjar enn ekki ánægðir
- Fimmtudagur, 21. júní 2007, Erlent Pólverjar hóta að beita neitunarvaldi gegn nýjum ESB-samningi
- Laugardagur, 23. júní 2007, Erlent Pólverjar lýsa ánægju með samkomulag um nýjan ESB-sáttmála
- Föstudagur, 22. júní 2007, Erlent Merkel reynir að tala Pólverja til
- Miðvikudagur, 27. júní 2007, Erlent Reiði yfir berbrjósta Angelu Merkel með forseta og forsætisráðherra Póllands
-
„Það má dúndra“
-
Komast leikandi upp úr riðlinum
-
Úlfar mun fylgjast með töktum þeirra bestu
-
Heilsuræktin í Elliðaárdalnum
-
Innsýn í reksturinn
-
Logi: Fyrir okkur er þetta flugeldasýning
-
Þorvaldur: Hitt liðið barðist meira
-
Beirut residents fear sectarian flare-up


































