Grunsamlegur pakki sprengdur í London

Lögregla leitar í bíl við Kings Cross lestarstöðina í London.
Lögregla leitar í bíl við Kings Cross lestarstöðina í London. Reuters

Lögreglan í London fann grunsamlegan pakka fyrir utan neðanjarðarlest í Hammersmith. Sprengjusérfræðinga sprengdu pakkann. Tveimur neðanjarðarlestarstöðvum var lokað vegna atviksins, sem kemur í kjölfar þriggja misheppnaðra hryðjuverkaárása um síðustu helgi og sprengju sem fannst í bíl í Glasgow í morgun. Lögreglan hefur ekki getað staðfest hvort sprengiefni var í pakkanum í Hammersmith.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert