Tala látinna í Írak hækkar enn

Tala látinna í ofbeldisverkum í Írak í dag er nú komin yfir sjötíu en flestir hinna látnu létu lífið er sendiferðabíl hlöðnum sprengiefnum var ekið inn á markað í norðurhluta landsins. Fjörutíu létu lífið í þeirri árás og níutíu slösuðust. Þá létu 22 lífið er sprengja sprakk á kaffihúsi í Diyala-héraði í nótt og sjö manna fjölskylda lét lífið er flugskeyti hafnaði á þaki heimilis hennar í Bagdad í morgun en fjölskyldan svaf á þakinu líkt og algengt er meðal Íraka.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert