Tinni fjarlægður úr barnabókahillum

Styttur af teiknimyndahetjunni knáu, Tinna.
Styttur af teiknimyndahetjunni knáu, Tinna. Reuters

Bókabúðakeðjan Borders hefur ákveðið að fjarlægja teiknimyndabækurnar um Tinna í Kongó úr barnabókahluta búðanna í Bretlandi, eftir að lögfræðingur kvartaði yfir því að bókin væri fordómafull gagnvart þeldökku fólki.

David Enright, lögfræðingur í Lundúnum, var að versla í Borders bókabúðinni þegar hann rakst á bókin um Tinna í Kongó, sem fyrst var gefin út árið 1931. Honum þótti efni bókarinnar vera fordómafullt gagnvart þeldökku fólki og kvartaði til jafnréttisráðs Bretlands, sem sér um að fylgjast með kynþáttajafnrétti í landinu.

Í bókinni eru Afríkubúar sýndir sem einfaldir, barnalegir og með mjög takmarkaðan orðaforða og eru þeir svo vitlausir að þeir gera hund að kóngi, sem hljómar frekar eins og lélegur, fordómafullur brandari en söguþráður barnabókar hins fræga myndabókahöfundar, Hérges.

Breska jafnréttisnefndin taldi bókina fara yfir strikið og segir nauðsynlegt að banna bókina.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert