Sex handteknir í tengslum við kókaíninnflutning

Kókaín
Kókaín AP

Spænska lögreglan greindi frá því að dag að hún hefði handtekið sex grunaða um smygl á kókaíni. Hefur lögreglan gert 1,3 kg af kókaíni upptæk sem fundust í borginni Salamanca á Norður-Spáni. Telur lögregla að sexmenningarnir, fimm Kólumbíumenn og einn Spánverji, tengist stórtækum smyglhring með höfuðstöðvar í höfuðborg landsins Madríd.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert