Bandaríkjaher sakaður um að hafa myrt saklausa borgara í loftárásum

Um eitt þúsund Írakar tóku þátt í fjöldagöngu í dag þar sem aðgerðum Bandaríkjanna í landinu var mótmælt, en Bandaríkjaher er sakaður um að hafa myrt óbreyttra borgara í loftárásum sem gerðar voru á bæinn Husseiniya, sem er norður af Bagdad, í gær.

Bandaríkjaher segist hafa fellt sex uppreisnarmenn og sært fimm í árásunum, en íraska lögreglan og íbúar í bænum eru ekki á sama máli. Þeir segja að 18 hafi látist og 21 hafi særst.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert