Huggandi ferðalög til sólarlanda

Danir vilja komast í sólina.
Danir vilja komast í sólina. mbl/Golli

Danir vilja flýja land eftir vonbrigði sumarsins. Inn á ferðaskrifstofur landsins flykkist fólk í leit að sól og sumri í haust og vetur, að því er kemur fram á Jyllands-Posten.

Talsmaður Apollo ferða segir meirihluta viðskiptavina skrifstofunnar vera barnafólk og þar sem allar ferðir eru upppantaðar í sumar neyðist fólk til að fara í haust og í vetur.

Met var slegið í sölu á haust- og vetrarferðum á Apollo ferðaskrifstofunni. Starfsmenn hennar segja slíkar ferðir vera kallaðar huggandi ferðir, þar sem aukning verður á þeim þegar veður er vont í heimalandinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert