Tugir þúsunda heimila og fyrirtækja rafmagnslaus í Barcelona

Forsíða El Periodico í dag.

Forsíða El Periodico í dag.

Tugir þúsunda heimila og fyrirtækja eru án rafmagns í spænsku borginni Barcelona annan daginn í röð. Hefur rafmagnsleysið valdið miklum truflunum á öllu lífi í Barcelona. Eru umferðarljós óvirk og margir hafa setið fastir í lyftum.

Alls hefur rafmagnsleysið haft áhrif á líf hundruð þúsunda íbúa borgarinnar en orkufyrirtækið Fecsa-Endesa segir að í morgun hafi 80 þúsund viðskiptavinir fyrirtækisins verið án rafmagns en vonir standa til að 50 þúsund þeirra fái rafmagn að nýju síðar í dag.

Mikil reiði er meðal fólks í borginni vegna rafmagnsleysisins og hafa bæði borgaryfirvöld og fjölmiðlar gagnrýnt rafmagnsleysið. Segja þau að orkufyrirtækin Fecsa-Endesa og Red Electrica de Espana beri ábyrgðina á rafmagnsleysinu. Segir borgarstjóri Barcelona, Jordi Hereu, að það verði ekki liðið að borgarbúar þurfi að búa við rafmagnsleysi aðra nóttina í röð. Á forsíðu El Periodico stóð einungis „Það er ekki á". Að öðru leyti var forsíðan svört fyrir utan myndir af fólki með logandi kerti í búðum og börum.

Svo virðist sem rafmagnið hafi fyrst farið af þegar rafmagnslína gaf sig og spennustöð varð óvirk. Í kjölfarið urðu fleiri spennistöðvar óvirkar og það kviknaði í einni.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent »

Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu

22:00 Meira en 57.000 manns eru í fangelsi á Kúbu, þar af hafa um 23.000 einhvern starfa og fá greitt fyrir. Hluti þeirra er á bak við lá og slá vegna stjórnmálaskoðana sinna. Meira »
Ein af flugvélum bandaríska flugfélagsins US Airways.

Sagðist vera með sprengju í líkamanum

20:32 Bandarískri farþegaflugvél flugfélagsins US Airways, sem var á leiðinni frá París til borgarinnar Charlotte í Norður-Karólínuríki í Bandaríkjunum var lent snarlega eftir að frönsk kona sem var farþegi um borð, sagðist vera með „ígræddan búnað“ sem gæti grandað vélinni. Meira »

Kennarar og nemendur mótmæla

Frá mótmælunum á Spáni í dag.
20:09 Tugþúsundir kennara og nemenda á Spáni mótmæltu í dag fyrirhuguðum niðurskurði í menntamálum í landinu. Fólkið lagði niður störf og gekk fylktu liði um götur og stræti Spánar, margir í grænum stuttermabolum sem eru orðnir að einkenni mótmælanna. Meira »

Væri upphafið að endalokum evrunnar

Írski þingmaðurinn Richard Boyd Barrett.
19:39 Evrópusambandið mun halda áfram að styðja Írland og veita því neyðaraðstoð ef á þarf að halda jafnvel þó að írskir kjósendur hafni fjármálastöðugleikasáttmála sambandsins. Meira »

Gríski harmleikurinn heldur áfram

Christine Lagarde, framkvæmdastjóri AGS.
17:10 Christine Lagarde, framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, segir að vinstriflokkarnir í Grikklandi verði að horfast í augu við þann niðurskurð sem nauðsynlegur sé, eigi Grikkir að komast upp úr þeim efnahagslega öldudal sem þeir eru nú í. Meira »

14 ára skaut á skólafélaga

Lögregla var með mikinn viðbúnað í bænum Memmingen í Suður-Þýskalandi þegar 14 ára piltur skaut ...
19:47 Fjórtán ára drengur skaut á skólafélaga sína í bænum Memmingen, skammt frá borginni München í Suður-Þýskalandi og hljóp síðan á brott. Honum var veitt eftirför og skaut hann þá nokkrum skotum til viðbótar. Engan sakaði og hefur pilturinn nú verið tekinn höndum og mun sæta geðrannsókn. Meira »

Ummæli prests vekja reiði

Fánar samkynhneigðra blakta á lofti í Gleðigöngunni í Reykjavík. Mannréttindi samkynhneigðra eru ekki alls staðar ...
17:31 Ummæli prests baptistasöfnuðar í Norður-Karólínuríki í Bandaríkjunum um að safna ætti öllu samkynhneigðu fólki saman, reka það inn í rétt og láta það síðan deyja drottni sínum, hafa vakið mikla reiði víða. Presturinn lét svo ummælt í predikun sem tekin var upp á myndband og síðan sett á YouTube. Meira »

Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift

17:00 Þrjátíu pör sem gefin voru saman fyrir um ári með borgaralegum hætti í Uppsölum í Svíþjóð eru enn þrátt fyrir það ógift. Í ljós kom að borgarstjórinn sem gaf pörin saman hafði ekki lengur réttindi til þess þegar brúðkaupin fóru fram. Meira »

Neyðarástand á Ítalíu

Íbúðarhús sem skemmdist í jarðskjálftanum í bænum Finale Emila skammt frá borginni Modena.
16:46 Neyðarástandi hefur verið lýst yfir á Norðaustur-Ítalíu, þar sem öflugur jarðskjálfti sem mældist 6 stig, reið yfir í fyrradag. Um 5.000 manns eru heimilislaus eftir að fjöldi íbúðarhúsa skemmdist í skjálftanum og ítalska ríkisstjórnin hefur lofað því að fé verði veitt til uppbyggingar. Meira »

Kæfðu dóttur sína með plastpoka

Shafilea Ahmed.
16:09 Foreldrar breskrar stúlku hafa verið ákærðir fyrir að kæfa dóttur sína með því að troða plastpoka upp í hana og kæfa hana. Fjögur börn þeirra horfðu upp á systur sína myrta, en í dag lýsti eitt þeirra fyrir dómi því sem gerðist þegar stúlkan lést. Meira »

Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó

Á hverju ári eru um 100.000 konur í Suður-Ameríku seldar mansali milli landa.
16:15 Á hverju ári eru þúsundir kvenna þvingaðar í vændi og seldar frá Mexíkó til Bandaríkjanna. Í úttekt BBC á mansali í Mexíkó kemur fram að stúlkurnar séu flestar á aldrinum 14-19 ára og séu þvingaðar til að þjónusta 25-30 karla á hverri vakt. Flestar eru sendar til New York. Meira »

Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn

Zikovs skaut Egle, sem var óvopnaður, þrisvar sinnum. Með Egle í för var ung dóttir ...
15:52 Héraðsdómstóll í Lettlandi hefur dæmt mann í 17 ára fangelsi fyrir að hafa skotið mann til bana í kvikmyndahúsi. Lögfræðingurinn Nikolajs Zikovs skaut bankastarfsmanninn Aigars Egle til bana í kjölfar rifrildis, en Zikovs þótti Egle hafa of hátt þegar hann var að borða poppkorn. Meira »

Stuðningur eykst við jafnaðarmenn

Angela Merkel, kanslari Þýskalands.
15:51 Stuðningur við þýska jafnaðarmenn hefur aukist verulega samkvæmt nýrri skoðanakönnun fyrir dagblaðið Bild en samkvæmt henni mælast þeir nú með 32% fylgi á meðan helsti keppinauturinn, kristilegir demókratar undir forystu Angelu Merkel kanslara Þýskalands, mælist með 33%. Meira »

Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands

15:16 Þjóðaratkvæðagreiðsla um svonefndan fjármálastöðugleikasáttmála innan Evrópusambandsins fer fram á Írlandi 31. maí næstkomandi en Írar eru einir þjóða innan sambandsins sem munu kjósa um sáttmálann, sem ætlað er að stuðla að efnahagslegum stöðugleika á evrusvæðinu og auknum samruna innan þess, þar sem írska stjórnarskráin krefst þess. Meira »

Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik

Anders Behring Breivik lítur yfir áhorfendur í dómssalnum í Ósló.
13:59 Ungmenni sem lifðu af fjöldamorðin í Útey halda áfram að bera vitni gegn Anders Behring Breivik í dag. Þ.á.m. er 18 ára gamall piltur sem missti annað augað. Hann sló á létta strengi og sagði að það kæmi sér ágætleg þarna, „þá slepp ég við að horfa þangað" sagði hann og benti í átt að Breivik. Meira »

Mótmæli kveðin niður í Bakú

Júróvisjón söngvakeppnin fer ekki framhjá neinum sem staddur er í Bakú í Aserbaídsjan, en mótmæli ...
15:16 Allra augu í Evrópu verða á Aserbaídsjan í kvöld, þegar fyrri forkeppni Júróvisjón söngkeppninnar fer fram í Bakú. Raddir mótmælenda þar í landi heyrast hins vegar ekki víða. Í gærkvöldi stöðvaði lögregla í Bakú af hörku um 100 mótmælendur sem kröfðust m.a. frelsun pólitískra fanga. Meira »

Tók 7 ára stúlku í gíslingu

15:14 Tékknesk kona gekk inn í skóla í borginni Havirov, stakk kennara nokkrum sinnum með hníf og tók sjö ára stúlku í gíslingu. Lögreglan handtók hana skömmu síðar. Meira »

Mótmæla niðurskurði til menntamála

13:54 Spænskum skólum hefur verið lokað í dag í mótmælaskyni, en þetta á jafnt við grunn- framhalds- og háskóla. Nemendur, foreldrar og kennarar hafa komið saman til að mótmæla aðhaldsaðgerðum stjórnvalda, en þau hyggjast skera niður útgjöld til menntamála. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Rafskutla til sölu
Til sölu ónotuð rafskutla sem hentaði ekki viðkomandi einstaklingi. Verð: 295.0...
Hvammur sumarhús á Snæfellsnesi til leigu
Stórt og velbúið heilsárshús á sunnanverðu Snæfellsnesi,vikuleiga. Gisting fyrir...
Palomino Colt fellihýsi til sölu
Mjög vel með farið 9 feta Palomino Colt árg 2002 ásamt fortjaldi+dúk. Sólarsella...
KAUPUM GULL
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR Kaupum allt gull. Kaupum silfurborðb...
 
Forstöðumaður
Stjórnunarstörf
Hannesarholt er nýlega stofnað menningar...
Hjálpræðisherinn samkoma
Félagsstarf
Samkoma, sunnudag kl. 17 Sigurður...
Til sölu m-bens e-200

Til sölu M-BENS E-200 Árgerð...
Sýslumaðurinn á selfossi - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....