Eldur kom upp á hóteli

Einn lést og sex manns er saknað eftir að eldur kom upp á hóteli í Cornwall í Bretlandi í dag. Þrír voru fluttir með minniháttar áverka á sjúkrahús. Gestir hótelsins og tveggja annarra í nágrenninu voru fluttir í öruggt skjól eftir að eldur kom upp undir þaki hússins.

Ekki er víst mennirnir sex, sem saknað er, séu inni í húsinu. Þak hússins er ónýtt og hæðir þess hrundu allar. Rúmlega hundrað slökkviliðsmenn vinna að björgunaraðgerðum og slökkvistarfi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert