Galli í innkölluðum leikföngum hjá Mattel reynist vera í hönnun þeirra
Thomas Debrowski, aðstoðarforstjóri Mattel, staðfesti þetta í Peking og bað hann kínverska framleiðendur leikfanga afsölunar á því tjóni sem þetta hefur valdið á orðspori kínverskra leikfangaframleiðenda.
Mattel innkallaði yfir 20 milljónir leikfanga og í kjölfarið jókst þrýstingur á bandarísk stjórnvöld að setja hömlur á innflutning frá Kína til Bandaríkjanna.
Innköllun leikfanga sem framleidd eru í Kína hafði víðtæk áhrif á útflutning frá Kína þar sem ótti skapaðist um gæði á annarri vöru sem framleidd er í Kína, svo sem tannkrems og hjólbarða.
Þar til nú hafa undirverktakar Mattel í Kína þurft að sitja undir harðri gagnrýni um gæði þeirra leikfanga sem Mattel hefur innkallað. Meðal annars hefur því verið haldið fram að eiturefni sé að finna í málningu leikfanganna. Einhver fyrirtæki hafa misst samninga um framleiðslu leikfanga og Mattel hefur hert eftirlit með þeirri vöru sem framleidd er fyrir fyrirtækið í Asíu.
En í ljós er komið að stór hluti gallans er hönnunargalli hjá Mattel og hefur Thomas Debrowski nú lýst því yfir að Mattel beri fulla ábyrgð á þeim göllum sem fundist hafa í leikföngum frá fyrirtækinu.
„Mattel ber fulla ábyrgð á innkölluninni og biður ykkur kínversku þjóðina persónulega afsökunar og alla okkar viðskiptavini sem fengu leikföngin í hendur," sagði Debrowski við Li Changjiang, yfirmann gæðamála í Kína.
Sagði hann mikilvægt að allir gerðu sér grein fyrir því að meirihluti leikfanganna sem voru innkölluð voru gölluð í hönnun ekki vegna galla í framleiðslu í Kína, að því er fréttavefur BBC greinir frá.
Debrowski staðfesti að Mattel teldi að fyrirtækið hafi jafnvel gengið of langt í innköllun leikfanga þar sem einhver hluti þeirra hafi ekki brotið gegn þeim reglum sem gilda um gæðamál í Bandaríkjunum.
Li sagði að þessi skýring væri óásættanleg og að ekki væri hægt að innkalla tíu þúsund hluti einungis vegna mögulegs galla í einum. Hann sagði hins vegar að Kínverjar vildu áfram vinna fyrir Mattel fyrirtækið, en stór hluti hagnaðar Mattel verður til í Kína.
Erlent »
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- „Cameron stalst aðeins út fyrir“
- Tollurinn með milljarðamálverk í sinni vörslu
- DNA-próf sannar uppruna þorsks
- Kínverskar eftirlíkingar í bandaríska hernum
- Mannskætt lestarslys
- Einkarekin geimflaug á loft
- Kunnugleg andlit við kjötkatlana
- Fjögur börn létust í sprengjuárás í Írak
- Fimm létust í sprengjuárás í Damaskus
- Glæpir gegn mannkyni í Sýrlandi?
- Táknræn athöfn haldin
- Harður jarðskjálfti í Búlgaríu
Mánudagur, 21.5.2012
- Fimmtungur sett kynferðislegar myndir á netið
-
Frakkar ætla frá Afganistan
- Myrti bróður sinn og sundurlimaði
- Vilja merkja vörur frá Ísrael
-
Egyptar kjósa forseta
- Vonir Le Pens um þingsæti í uppnámi
- Grikkir fá 23% lægri laun
- Varar Breta við íslenskri einangrun
- Margir heimilislausir eftir skjálfta
- Getnir eftir andlát föður og arflausir
- Fimm stjörnu flokkurinn vann sigur
- Dæmdur fyrir upptöku af herbergisfélaga
- Mannskætt rútuslys í Albaníu
- Óttast blóðuga borgarastyrjöld
- Kastaði börnum sínum fram af svölum
- Vilja Grikki áfram á evrusvæðinu
- Vatnið var rautt af blóði
- Þorpið fór á 84,6 milljónir
- Ráðherra til rannsóknar
- „Þið munuð deyja í dag, marxistar“
- Saleh lagður inn á spítala
- 14 aftökur í Íran í dag
- Náðist á upptöku
- Þúsundir hafast við í neyðarskýlum
- „Skrímslið frá Riga“ fékk 18 ára dóm
- Tekur við verðlaununum 16. júní
- Bandaríkjamenn og Pakistanar deila í Chicago
- Bandamenn Pútín í stjórn
- Áfram gert ráð fyrir aðild Grikkja
- Sjálfsmorðsárás í Jemen
- Þrír fórust á Everest
- Strauss-Kahn sakaður um hópnauðgun
- Átök í Líbanon
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Sýrland
- News of the World
- Strauss-Kahn handtekinn
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 2. ágúst 2007, Erlent Fisher Price kallar inn leikföng
- Þriðjudagur, 4. september 2007, Erlent Mattel innkallar fleiri leikföng
- Miðvikudagur, 15. ágúst 2007, Erlent Kínversku leikfangasamtökin sögð hafa vitað að leikföngin hafi verið gölluð
- Miðvikudagur, 22. ágúst 2007, Erlent 300.000 kínversk leikföng innkölluð í Bandaríkjunum
- Föstudagur, 18. júlí 2008, Erlent Mattel vinnur sigur í Bratz máli
-
„Það má dúndra“
-
Komast leikandi upp úr riðlinum
-
Úlfar mun fylgjast með töktum þeirra bestu
-
Heilsuræktin í Elliðaárdalnum
-
Innsýn í reksturinn
-
Logi: Fyrir okkur er þetta flugeldasýning
-
Þorvaldur: Hitt liðið barðist meira
-
Beirut residents fear sectarian flare-up


































