„Foreldrar Madeleine yfirgáfu ekki veitingahúsið"

Gerry og Kate McCann
Gerry og Kate McCann Reuters

Starfsfólk veitingastaðarins þar sem foreldrar bresku stúlkunnar Madeleine McCann snæddu kvöldverð kvöldið sem Madeleine hvarf staðhæfa að foreldrarnir hafi ekki yfirgefið veitingahúsið allt kvöldið. Foreldrarnir hafa haldið því fram að þau og vinir þeirra hafi litið til Madeleine og tveggja yngri systkina hennar, þar sem þau sváfu í sumarleyfisíbúð fjölskyldunnar, á hálftíma til klukkutíma fresti. Þetta kemur fram á fréttavef Jyllands-Posten.

Kate og Gerry McCann hafa fengið réttarstöðu grunaðra í málinu og er lögregla í Praia da Luz í Portúgal sögð telja að þau hafi valdið dauða Madeleine með því að gefa henni of stóran skammt svefnlyfja. Foreldrarnir neita því hins vegar alfarið og segja að henni hafi verið rænt úr íbúðinni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert