Írakar vilja að Blackwater greiði há manngjöld
L. Paul Bremer, fyrrverandi landsstjóri í Írak, í fylgd öryggisvarða frá Blackwater árið 2004. Reuters
Kröfurnar koma fram í skýrslu, sem gerð var á vegum íraskra stjórnvalda og skilað var um síðustu helgi. Að sögn AP fréttastofunnar, sem hefur skoðað skýrsluna, er þar einnig gerð krafa um að öryggisverðirnir, sem tóku þátt í skotárásinni 16. september, verði framseldir svo þeir geti komið fyrir rétt í Írak.
AP segir, að tónninn í skýrslunni gefi til kynna að samskipti ríkisstjórna Bandaríkjanna og Íraks fari enn versnandi vegna þessa máls. Málið hefur vakið upp spurningar um notkun einkafyrirtækja til að gæta öryggis bandarískra sendimanna og annarra embættismanna.
Í niðurstöðu írösku skýrslunnar, sem gerð var á vegum íraska varnarmálaráðuneytisins, er því haldið fram að menn í fjórum bílum frá Blackwater, sem kallaðir voru að hringtorginu, hafi byrjað að skjóta án þess að þeim væri ögrað. Blackwater heldur því fram að skotið hafi verið á mennina fyrst.
Þá segir í skýrslunni, að bótakröfur séu jafn háar og raun beri vitni vegna þess að Blackwater noti starfsmenn sem virði ekki réttindi íraskra borgara þótt þeir séu gestir í landinu.
Bandaríkjaher greiðir bætur til fjölskyldna óbreyttra borgara, sem falla í bardögum eða fyrir skemmdir á fasteignum en þær eru mun lægri en Írakar krefjast í þessu máli.
Margar rannsóknir standa yfir af hálfu Bandaríkjanna á málinu. Í síðustu viku tók bandaríska alríkislögreglan, FBI, yfir rannsókn utanríkisráðuneytisins sem þykir benda til þess að málinu kunni að verða vísað til dómsmálaráðuneytisins og þar með ákærumeðferðar.
Írakar segja, að leyfi Blackwater til að starfa í Írak hafi runnið út í byrjun júní á síðasta ári. Starfsmenn félagsins hafi því ekki lengur friðhelgi fyrir íröskum dómstólum í samræmi við lög, sem sett voru eftir að Saddam Hussein var steypt af stóli 2003.
Þá draga Írakar í efa fullyrðingar um, að tilskipun, sem L. Paul Bremer, þáverandi landsstjóri gaf árið 2004, veiti Blackwater friðhelgi í málum á borð við það sem kom upp á Nosoortorgi.
Í skýrslu Íraka er fullyrt, að starfsmenn Blackwater hafi drepið 21 óbreyttan borgara og sært 27 í fyrri skotárásum á síðustu árum. Bandaríska utanríkisráðuneytið segir að starfsmenn Blackwater hafi lent í 56 skotbardögum á þessu ári.
Nú stendur yfir umfangsmikil rannsókn á starfsemi Blackwater í Írak samkvæmt fyrirskipun Condoleezzu Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna.



































