Norskur hermaður lést í Afganistan

Frá Afganistan.
Frá Afganistan. Reuters

Norskur hermaður lést og annar særðist alvarlega er bíll þeirra ók á jarðsprengju í Afganistan í dag. Báðir hermennirnir eru á tvítugsaldri. Hermennirnir voru í Toyota Landcruiser jeppum í samfloti við annan bíl sem skaddaðist ekki við sprenginguna og gat hann komið særða hermanninum undir læknishendur.

Norska blaðið Aftenposten skýrir frá því að hinn særði hermaður sé mjög mikið særður en ekki lífshættulega.

Hermennirnir þjóna með norskum liðsstyrk í Meymaneh og hafa þeir að undanförnu tekið þátt í hörðum bardögum í Norður-Afganistan.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert