Kreditkortaframleiðsla stöðvuð á Spáni

Kreditkort
Kreditkort AP

Spænska lögreglan hefur handtekið 44 í tengslum framleiðslu á kreditkortum í héröðunum Castellon og Tarragona. Flestir hinna handteknu eru Rúmenar en um 2 þúsund fölsuð kreditkort voru gerð upptæk í aðgerðum lögreglunnar.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var gerð húsleit á 23 stöðum og voru kreditkortin framleidd á sex staðanna. Notaði glæpahópurinn sambönd í Evrópu og Norður-Ameríku til þess að útvega kortanúmer og voru kortin síðan notuð til þess að kaupa ýmsan varning á netinu sem var síðan seldur og að taka út peninga úr hraðbönkum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert