Klessukeyrði nýja Airbus-þotu

Flugvélin eftir slysið.
Flugvélin eftir slysið. AP

Reynsluflugmaður hjá Airbus verksmiðjunum nálægt Toulouse í Frakklandi klessukeyrði spánnýja Airbus 360-600 farþegaþotu í gær þegar hann ók hanni á fullri ferð á vegg við flugbraut. Níu manns voru um borð í vélinni og meiddust allir, þar af þrír alvarlega. Þá meiddist einn maður á jörðu niðri. Flugvélin er talin vera ónýt.

Lokaprófanir á vélinni stóðu yfir en til stóð að afhenda hana flugfélaginu Etihad Airways í Abu Dhabi.

Jean-Louis Borloo, umhverfisráðherra Frakklands, hefur krafist rannsóknar á óhappinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert