8 og 9 ára piltar í haldi grunaðir um aðild að nauðgun

Þrír bandarískir piltar á aldrinum 8-9 ára eru í haldi lögreglu grunaðir um að hafa rænt 11 ára gamalli stúlku og einn þeirra hafi síðan nauðgað henni í skógi í nágrenni úthverfis Atlanta. Voru piltarnir handteknir í dag en meint nauðgun átti sér stað á fimmtudag. Móðir stúlkunnar kærði nauðgunina til lögreglu í gær.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var stúlkan að leika við drengina er þeir fóru með hana í skóginn þar sem einn piltanna nauðgaði henni. Eru drengirnir kærðir fyrir nauðgun, mannrán, nauðung og kynferðislegt ofbeldi, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Ekki hefur verið ákveðið af saksóknaraembættinu hvort réttað verður yfir þeim sem fullorðnum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert