Varð börnum sínum að bana

Þrítug móðir varð tveimur börnum sínum að bana í Frederikshavn í Danmörku í gær. Hún hafði síðan samband við lögreglu áður en reyndi að fremja sjálfsmorð. Börnin voru fimm og tíu ára.

Konan hafði samband við lögregluna í Frederikshavn kl. 18:16 í gær. Þegar lögreglan kom á vettvang voru börnin látin. Móðirin lá hinsvegar á gólfinu.

Lögreglan segir málið vera í rannsókn og hefur lítið viljað tjá sig um atburðinn. 

Konan bjó ein með börnunum sínum tveimur. Hún var lögð inn á sjúkrahús og verður síðar yfirheyrð.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert