Bjó í fylgsni á heimilinu
Anne Darwin, eiginkona manns sem talinn var hafa látist fyrir fimm árum , hefur greint frá því að hann hafi búið á heimili þeirra í nærri þrjú ár frá því hann var úrskurðaður látinn í kjölfar smábátaslyss. Darwin segir eiginmanninn John hafa dvalið í fylgsni á bak við fataskáp í svefnherbergi þeirra. Þetta kemur fram á fréttavef Sky
„Í þrjú ár þegar allir sem stóðu okkur næst héldu að John væri horfinn og talinn af, var hann í raun heima hjá mér," er haft eftir konunni en hjónin áttu tvö samliggjandi hús og munu hafa útbúið fylgsnið í því húsinu sem ekki var búið í.
Anne hefur greint fréttamönnum frá því að eiginmaður hennar hafi lengi talað um að sviðsetja dauða sinn áður en hann lét verða af því. Þá segist hún ekki hafa vitað að um sviðsetningu væri að ræða fyrr en hann birtist á heimili þeirra ellefu mánuðum eftir að hann hvarf. Segir hún hann hafa hótað að segja hana meðseka léti hún yfirvöld vita að hann væri á lífi.
Gefin hefur verið út handtökuskipun á hendur Anne en eiginmaður hennar John birtist óvænt á lögreglustöð eftir að hafa verið talinn látinn í fimm ár. Anne er sögð vera á leið til Bretlands og verður hún handtekin jafnskjótt og hún stígur fæti á breska grundu.
John Darwin var talinn hafa látist í kanó-slysi árið 2002, en nú þykir víst að hann hafi ásamt konu sinni sviðsett dauðdaga sinn og innheimt tryggingaféð.
Synir hjónanna segjast ekki hafa vitað að faðir þeirra var á lífi og vilja sem minnst vita af foreldrum sínum. Þeir segjast æfareiðir yfir því að hafa verið gerðir að fórnarlömbum í tryggingasvikamáli.
Erlent »
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- „Cameron stalst aðeins út fyrir“
- Tollurinn með milljarðamálverk í sinni vörslu
- DNA-próf sannar uppruna þorsks
- Kínverskar eftirlíkingar í bandaríska hernum
- Mannskætt lestarslys
- Einkarekin geimflaug á loft
- Kunnugleg andlit við kjötkatlana
- Fjögur börn létust í sprengjuárás í Írak
- Fimm létust í sprengjuárás í Damaskus
- Glæpir gegn mannkyni í Sýrlandi?
- Táknræn athöfn haldin
- Harður jarðskjálfti í Búlgaríu
Mánudagur, 21.5.2012
- Fimmtungur sett kynferðislegar myndir á netið
-
Frakkar ætla frá Afganistan
- Myrti bróður sinn og sundurlimaði
- Vilja merkja vörur frá Ísrael
-
Egyptar kjósa forseta
- Vonir Le Pens um þingsæti í uppnámi
- Grikkir fá 23% lægri laun
- Varar Breta við íslenskri einangrun
- Margir heimilislausir eftir skjálfta
- Getnir eftir andlát föður og arflausir
- Fimm stjörnu flokkurinn vann sigur
- Dæmdur fyrir upptöku af herbergisfélaga
- Mannskætt rútuslys í Albaníu
- Óttast blóðuga borgarastyrjöld
- Kastaði börnum sínum fram af svölum
- Vilja Grikki áfram á evrusvæðinu
- Vatnið var rautt af blóði
- Þorpið fór á 84,6 milljónir
- Ráðherra til rannsóknar
- „Þið munuð deyja í dag, marxistar“
- Saleh lagður inn á spítala
- 14 aftökur í Íran í dag
- Náðist á upptöku
- Þúsundir hafast við í neyðarskýlum
- „Skrímslið frá Riga“ fékk 18 ára dóm
- Tekur við verðlaununum 16. júní
- Bandaríkjamenn og Pakistanar deila í Chicago
- Bandamenn Pútín í stjórn
- Áfram gert ráð fyrir aðild Grikkja
- Sjálfsmorðsárás í Jemen
- Þrír fórust á Everest
- Strauss-Kahn sakaður um hópnauðgun
- Átök í Líbanon
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Sýrland
- News of the World
- Strauss-Kahn handtekinn
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 7. desember 2007, Erlent Handtökuskipun gefin út á Anne Darwin
- Mánudagur, 14. júlí 2008, Erlent Réttað í máli Anne Darwin
- Mánudagur, 10. desember 2007, Erlent John Darwin í gæsluvarðhald
- Sunnudagur, 9. desember 2007, Erlent Anne Darwin handtekin
- Fimmtudagur, 6. desember 2007, Erlent Eiginkonan vissi að maður hennar var á lífi
-
„Það má dúndra“
-
Komast leikandi upp úr riðlinum
-
Úlfar mun fylgjast með töktum þeirra bestu
-
Heilsuræktin í Elliðaárdalnum
-
Innsýn í reksturinn
-
Logi: Fyrir okkur er þetta flugeldasýning
-
Þorvaldur: Hitt liðið barðist meira
-
Beirut residents fear sectarian flare-up
Grunn-/framhaldsskóla
Lausar stöður við Grunnskóla Hornaf...



































