„Siðlaust að bjóða ESB-aðild fyrir Kosovo"
Vuk Jeremic, utanríkisráðherra Serbíu segir ekki koma til greina að Serbar fallist á sjálfstæði Kosovo gegn aðild að Evrópusambandinu. Þá segir hann að verði Serbum boðinn slíkur samningur muni hann líta á það sem örgustu móðgun. „Slíkt tilboð væri algerlega siðlaust og leiðtogar Evrópu eru heiðvirt fólk,” sagði hann. „Þeir hafa því ekki lagt fram slíkt tilboð.” Þetta kemur fram á fréttavef BBC.
Boris Tadic, forseti Serbíu, hefur hins vegar sagt að hann sé ekki tilbúinn til að rjúfa samskipti ríkisins við Evrópusambandið jafnvel þótt leiðtogar þess ákveði að styðja sjálfstæði Kosovo.
Leiðtogar Evrópusambandsins vinna nú að útfærslu hugmynda um umfangsmesta eftirlits- og uppbyggingarstarf sem sambandið hefur tekist á við. Hugmyndirnar eru miðaðar við það að yfirvöld í Kosovo lýsi yfir sjálfstæði og að Evrópusambandið taki að sér yfirumsjón uppbyggingar- og eftirlitsstarfa þar.
Samkvæmt heimildum Oana Lungescu, fréttamanns BBC, er í hugmyndunum gert ráð fyrir því að allt að 1.800 lögreglumenn, dómarar og saksóknarar fari til Kosovo á vegum sambandsins.Einnig er sagður töluverður stuðningur fyrir því innan sambandsins að Serbum verði undanþágur frá kröfum um aðild að sambandinu til að reyna að tryggja stöðugleika á Balkanskaga í kjölfar aðskilnaðar Kosovo frá Serbíu.
Töluverð andstaða er þó við það innan sambandsins að veita Serbum undanþágur frá aðildarkröfum og hafa yfirvöld í Hollandi m.a. lýst því yfir að þau séu andvíg aðildarviðræðum við Serbíu áður en yfirvöld þar í landi hafa framselt alla þá sem eftirlýstir eru af stríðsglæpadómstólnum í Haag og taldir eru dvelja í landinu.
Þá hafa yfirvöld á Kýpur og Spáni, í Grikklandi, Slóvakíu og Rúmeníu lýst áhyggjum af því að stuðningur sambandsins við sjálfstæði Kosovo muni styrkja málstað aðskilnaðarsinna í öðrum ríkjum Evrópu.Erlent »
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- „Cameron stalst aðeins út fyrir“
- Tollurinn með milljarðamálverk í sinni vörslu
- DNA-próf sannar uppruna þorsks
- Kínverskar eftirlíkingar í bandaríska hernum
- Mannskætt lestarslys
- Einkarekin geimflaug á loft
- Kunnugleg andlit við kjötkatlana
- Fjögur börn létust í sprengjuárás í Írak
- Fimm létust í sprengjuárás í Damaskus
- Glæpir gegn mannkyni í Sýrlandi?
- Táknræn athöfn haldin
- Harður jarðskjálfti í Búlgaríu
Mánudagur, 21.5.2012
- Fimmtungur sett kynferðislegar myndir á netið
-
Frakkar ætla frá Afganistan
- Myrti bróður sinn og sundurlimaði
- Vilja merkja vörur frá Ísrael
-
Egyptar kjósa forseta
- Vonir Le Pens um þingsæti í uppnámi
- Grikkir fá 23% lægri laun
- Varar Breta við íslenskri einangrun
- Margir heimilislausir eftir skjálfta
- Getnir eftir andlát föður og arflausir
- Fimm stjörnu flokkurinn vann sigur
- Dæmdur fyrir upptöku af herbergisfélaga
- Mannskætt rútuslys í Albaníu
- Óttast blóðuga borgarastyrjöld
- Kastaði börnum sínum fram af svölum
- Vilja Grikki áfram á evrusvæðinu
- Vatnið var rautt af blóði
- Þorpið fór á 84,6 milljónir
- Ráðherra til rannsóknar
- „Þið munuð deyja í dag, marxistar“
- Saleh lagður inn á spítala
- 14 aftökur í Íran í dag
- Náðist á upptöku
- Þúsundir hafast við í neyðarskýlum
- „Skrímslið frá Riga“ fékk 18 ára dóm
- Tekur við verðlaununum 16. júní
- Bandaríkjamenn og Pakistanar deila í Chicago
- Bandamenn Pútín í stjórn
- Áfram gert ráð fyrir aðild Grikkja
- Sjálfsmorðsárás í Jemen
- Þrír fórust á Everest
- Strauss-Kahn sakaður um hópnauðgun
- Átök í Líbanon
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Sýrland
- News of the World
- Strauss-Kahn handtekinn
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 4. febrúar 2008, Erlent Barroso vill flýta aðild Serbíu að ESB
- Föstudagur, 8. febrúar 2008, Erlent Tíu dagar í sjálfstæði Kosovo?
- Fimmtudagur, 14. febrúar 2008, Erlent Öryggisráð SÞ heldur fund um Kosovo
- Sunnudagur, 15. júní 2008, Erlent Ný stjórnarskrá í Kosovo
- Laugardagur, 16. febrúar 2008, Erlent Sjálfstæði Kosovo lýst yfir á morgun
-
„Það má dúndra“
-
Komast leikandi upp úr riðlinum
-
Úlfar mun fylgjast með töktum þeirra bestu
-
Heilsuræktin í Elliðaárdalnum
-
Innsýn í reksturinn
-
Logi: Fyrir okkur er þetta flugeldasýning
-
Þorvaldur: Hitt liðið barðist meira
-
Beirut residents fear sectarian flare-up


































