Bin Laden boðar nýtt heilagt stríð

Osama bin Laden.
Osama bin Laden. AP

Osama bin Laden, leiðtogi al Qaeda samtakanna, boðar nýtt heilagt stríð og árásir gegn Ísrael í hljóðupptöku sem  birt var á netinu í dag. 

„Við ætlum okkur að frelsa Palestínu, alla Palestínu frá ánni til sjávar," segir hann og hótar „blóði fyrir blóð og eyðileggingu fyrir eyðileggingu.

Algengt er að bin Laden og aðrir leiðtogar al Qaeda heiti því í yfirlýsingum sínum að frelsa Palestínu en í þessi nýjustu yfirlýsingu bin Ladens þykir hann mun harðorðari  og hvassari en hann á vanda til.

„Við munum ekki fallast á eitt einasta fet fyrir gyðing á landi Palestínumenna eins og aðrir leiðtogar múslíma hafa gert," segir hann.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert