Clinton beygði af

Hillary Clinton viðurkenndi að kosningabaráttan væri ekki auðveld.
Hillary Clinton viðurkenndi að kosningabaráttan væri ekki auðveld. Reuters

Hillary Clinton beygði af og rödd hennar brast er tilfinningarnar báru hana ofurliði er hún ræddi við óákveðna kjósendur í kaffispjalli í New Hampshire í dag. Hún var spurð að því hvernig hún kæmist í gegnum daginn og hún svaraði því til að það væri ekki auðvelt. „Ég gæti þetta ekki ef ég hefði ekki ástríðufulla trú á að þetta sé hið eina rétta,” sagði Clinton.

„Ég hef fengið svo mörg tækifæri í þessu landi, ég vil ekki að við leggjum árar í bát,” sagði Clinton og rödd hennar breyttist í hvísl.

„Þetta er mér ákaflega persónulegt mál... ekki bara pólitískt... Ég sé hvað er að gerast. Sumt fólk telur að kosningabaráttan sé leikur,” sagði hún skjálfandi röddu.

„Þetta gengur út á landið okkar, framtíð barnanna okkar,” bætti fyrrum forsetafrúin við.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert