Omar gagnrýnir aðferðir Osama
„Ég reyni að segja við föður minn: Leitaðu annarra leiða til að ná takmarki þínu. Þessi sprengja, þessi vopn erum engum til góðs,” segir hann í viðtali við CNN sjónvarpsstöðina. Hann segist þó ekki líta á föður sinn sem hryðjuverkamann og að það hafi yfirvöld á Vesturlöndum heldur ekki gert þegar hann barðist gegn her Sóvétríkjanna í Afganistan. „Þá var það kallað stríð, nú er það kallað hryðjuverk,” segir hann. „Hann trúir því að hann hafi verk að vinna, sem þjóni fólkinu. Ég lít ekki á föður minn sem hryðjuverkamann þar sem sagan sýnir að hann er það ekki.
Spurður um hryðjuverkaárásirnar í Bandaríkjunum árið 2001 segir hann: „Persónulega finnst mér það sem gerðist 11. september ekki hafa verið rétt en það gerðist. Mér finnst heldur ekki að Víetnam hafi verið rétt og mér finnst ekki það sem er að gerast í Palestínu rétt. Mér finnst ekki það sem er að gerast í Írak rétt.”
Omar segist ekki hafa hugmynd um hvar faðir hans dvelji nú en að hann sé þess fullviss að hann verði ekki handsamaður þar sem hann njóti stuðnings almennings á því svæði þar sem hann dvelji. Fólkið þar sé öðru vísi og að veraldleg yfirvöld skipti það engu máli.
Omar hafði áður veitt AP-fréttastofunni viðtal en neitaði þá að fordæma aðgerðir föður síns. Hann var spurður að því í viðtalinu á CNN hvers vegna hann taki ekki harðari afstöðu til aðferða föður síns og segir það ekki vera í sínum verkahring. Það séu klerkar hans sem eigi að ráðleggja honum varðandi málefni íslam og að jafnvel þótt að Osama vildi breyta aðferðum al Qaeda samtakanna telji hann að hann hafi ekki vald til þess úr því sem komið sé.
Erlent »
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- „Cameron stalst aðeins út fyrir“
- Tollurinn með milljarðamálverk í sinni vörslu
- DNA-próf sannar uppruna þorsks
- Kínverskar eftirlíkingar í bandaríska hernum
- Mannskætt lestarslys
- Einkarekin geimflaug á loft
- Kunnugleg andlit við kjötkatlana
- Fjögur börn létust í sprengjuárás í Írak
- Fimm létust í sprengjuárás í Damaskus
- Glæpir gegn mannkyni í Sýrlandi?
- Táknræn athöfn haldin
- Harður jarðskjálfti í Búlgaríu
Mánudagur, 21.5.2012
- Fimmtungur sett kynferðislegar myndir á netið
-
Frakkar ætla frá Afganistan
- Myrti bróður sinn og sundurlimaði
- Vilja merkja vörur frá Ísrael
-
Egyptar kjósa forseta
- Vonir Le Pens um þingsæti í uppnámi
- Grikkir fá 23% lægri laun
- Varar Breta við íslenskri einangrun
- Margir heimilislausir eftir skjálfta
- Getnir eftir andlát föður og arflausir
- Fimm stjörnu flokkurinn vann sigur
- Dæmdur fyrir upptöku af herbergisfélaga
- Mannskætt rútuslys í Albaníu
- Óttast blóðuga borgarastyrjöld
- Kastaði börnum sínum fram af svölum
- Vilja Grikki áfram á evrusvæðinu
- Vatnið var rautt af blóði
- Þorpið fór á 84,6 milljónir
- Ráðherra til rannsóknar
- „Þið munuð deyja í dag, marxistar“
- Saleh lagður inn á spítala
- 14 aftökur í Íran í dag
- Náðist á upptöku
- Þúsundir hafast við í neyðarskýlum
- „Skrímslið frá Riga“ fékk 18 ára dóm
- Tekur við verðlaununum 16. júní
- Bandaríkjamenn og Pakistanar deila í Chicago
- Bandamenn Pútín í stjórn
- Áfram gert ráð fyrir aðild Grikkja
- Sjálfsmorðsárás í Jemen
- Þrír fórust á Everest
- Strauss-Kahn sakaður um hópnauðgun
- Átök í Líbanon
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Sýrland
- News of the World
- Strauss-Kahn handtekinn
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 18. janúar 2008, Erlent Sonur bin Ladens í friðarferð
- Sunnudagur, 9. nóvember 2008, Erlent Syni Bin Ladens vísað úr landi
- Miðvikudagur, 5. nóvember 2008, Erlent Fær ekki hæli á Spáni
- Fimmtudagur, 6. nóvember 2008, Erlent Sonur Bin Ladens áfrýjar
- Miðvikudagur, 19. september 2007, Erlent Syni og tengdadóttur bin Laden hótað lífláti
-
„Það má dúndra“
-
Komast leikandi upp úr riðlinum
-
Úlfar mun fylgjast með töktum þeirra bestu
-
Heilsuræktin í Elliðaárdalnum
-
Innsýn í reksturinn
-
Logi: Fyrir okkur er þetta flugeldasýning
-
Þorvaldur: Hitt liðið barðist meira
-
Beirut residents fear sectarian flare-up


































