CIA beitti vatnspyntingum

Michael Hayden, forstjóri CIA

Michael Hayden, forstjóri CIA Reuters

Michael Hayden, forstjóri bandarísku leyniþjónustunnar, CIA, hefur viðurkennt að  stofnunin hafi beitt vatnspyntingum til að fá fanga til að veita upplýsingar.

Hayden sagði fyrir þingnefnd í dag að aðferðin hefði þó aðeins verið notuð á þremur mönnum, og ekkert undanfarin fimm ár.

Við yfirheyrslu fyrir nefndinni sagði Hayden að aðferðin, þar sem fangar fá sterka drukknunartilfinningu, hefði verið notuð við yfirheyrslur á þremur hátt settum meðlimum hryðjuverkasamtakanna al-Qaída, þeim Khalid Sheikh Mohammed, Abu Zubaydah og Abd al-Rahim al-Nashiri.

Hayden sagði að óttast hafi verið að hryðjuverkaárásir væru yfirvofandi, og því hafi aðferðunum verið beitt.

Mannréttindasamtök hafa skilgreint aðferðina sem pyntingar, en bandarísk stjórnvöld gera það ekki. Bandaríska þingið hefur rætt um að banna notkun vatnspyntinga, en George W. Bush, Bandaríkjaforseti, hefur hótað að beita neitunarvaldi verði af því.
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent »

Ahmed Ben Bella.

Segja Ben Bella ýmist lífs eða liðinn

12:58 Misvísandi fréttir berast nú af því hvort Ahmed Ben Bella, fyrrum forseti Alsírs, sé lífs eða liðinn. Eitt dagblaðanna þar í landi hefur greint frá því að Ben Bella sé látinn, 96 ára að aldri, en alsírsk fréttastofa segir hann í stöðugu ástandi á spítala. Meira »
Starfsmaður Rauða krossins í útkalli.

Aðstoðar þörf í Mósambík eftir fellibylji

11:46 Alþjóðlegi Rauði krossinn kallaði í dag eftir þremur milljónum dala, um 375 milljónum kr., til að aðstoða þúsundir fjölskyldna í Mósambík sem enn bíða aðstoðar eftir að tveir fellibyljir gengu yfir landið í síðasta mánuði. Meira »

Fórnarlamba nýnasistahóps minnst

Angela Merkel kanslari við minningarathöfnina.
11:11 Einnar mínútu þögn var haldin í Þýskalandi í morgun til að minnast fórnarlamba nýnasista. Angela Merkel kanslari sagði fjölskyldum fórnarlambanna við sérstaka minningarathöfn í Berlín að þjóðin syrgði með þeim. Meira »

Umferðamiðstöð sprengd í Peshawar myndskeið

Sprenging á umferðamiðstöð í Peshawar
10:07 Átta létust og þrjátíu særðust þegar sprengja sprakk í umferðamiðstöð í Peshawar í norðvesturhluta Pakistans. Enginn hefur lýst yfir ábyrgð á árásinni. Meira »

Halda hátíð fyrir Pútín

Frá hátíðahöldunum í Moskvu í morgun.
08:17 Um 30,000 manns gengu fylktu liði um miðborg Moskvu í morgun til að sýna stuðning sinn við forsetaframboð Vladimirs Pútíns forsætisráherra Rússlands. Stjórnarandstæðingar segja að fólki hafi verið skipað að taka þátt í hátíðahöldunum. Meira »

Flytja erlenda fanga úr fangelsinu

Fangar í varðturni í Kerobokan-fangelsinu í Denpasar á Balí.
10:38 Yfirvöld í Indónesíu byrjuðu í dag að flytja erlenda fanga úr Kerobokan-fangelsinu á Balí. Þar hafa miklar óeirðir brotist út og hefur föngunum tekist að koma fangavörðunum frá og taka við stjórninni. Meira »

Breivik á marga pennavini

Norski fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik
09:37 Norski fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik stendur í umfangsmiklum bréfaskriftum við fjölda manna úr fangaklefa sínum. Honum er mikið í mun að stefnuyfirlýsing hans, hið svokallaða manifesto, nái til sem flestra. Meira »

Fangaverðir hjálpuðu föngum að flýja myndskeið

Fangaverðir handteknir í Mexíkó
07:57 Tugir mexíkóskra fangavarða voru handteknir í gær, grunaðir um að hafa aðstoðað dæmda meðlimi eiturlyfjagengja við að flýja úr fangelsi síðastliðna helgi. Meira »

Segja samkynhneigð glæpsamlega

Frá Indlandi.
07:43 Innanríkisráðuneyti Indlands hvetur hæstarétt landsins til að úrskurða um að kynlíf samkynhneigðra sé glæpur. Ráðuneytið segir það vera ósiðlegt, gegn öllum náttúrulögmálum og að þannig smitist alnæmi. Meira »

Óöld í Írak í nótt

Frá Bagdad í Írak.
07:17 Að minnsta kosti 32 létu lífið í sprengju- og skotárásum í Írak í nótt, þar af létust 22 í höfuðborginni Bagdad.  Meira »

Fundu lík fimm ára stúlku myndskeið

Kafarar finna fleiri lík í Costa Concordia
07:24 Kafarar fundu í nótt átta lík í flaki skemmtiferðaskipsins Costa Concordia sem marar undan strönd ítölsku eyjarinnar Giglio. Þar á meðal er lík fimm ára gamallar stúlku. Meira »

Talinn hafa skotið bekkjarsystur sína myndskeið

Níu ára drengur yfirheyrður vegna skotárásar á stúlku
06:49 Níu ára gamall bandarískur drengur er í haldi lögreglu vegna gruns um að hafa skotið úr byssu á átta ára gamla bekkjarsystur sína. Meira »

Strauss-Kahn fyrir dóm í mars

Dominique Strauss-Kahn
Í gær, 23:03 Fyrsta fyrirtakan í einkamálinu sem höfðað hefur verið í Bandaríkjunum gegn Dominique Strauss-Kahn hefur nú verið dagsett, og fer fram þann 15. mars. Hann mun því standa í ströngu í næsta mánuði því hann hefur líka verið boðaður fyrir rannsóknardóm í Frakklandi vegna ásakana um aðild að vændishring Meira »

Keyrði á fullum hraða á vegg

Björgunarmenn hjálpa farþegum sem út úr lestarflakinu við Once stöðina í Buenos Aires.
Í gær, 22:10 Aðkoman að lestarslysinu mannskæða í Buenos Aires í Argentínu í dag var skelfileg að sögn vitna. Lestin keyrði á fullu stími inn á lestarstöðina með bilaða hemla og áreksturinn varð gríðarharður. „Fólk var í kremju og öskraði í örvæntingu. Ég sá blóð og lík út um allt," sagði einn sjónarvotta. Meira »

Myrti fjóra í heilsulind myndskeið

Fimm létust í skotárás í Atlanta
Í gær, 21:37 Vopnaður maður skaut fjóra til bana í heilsulind í úthverfi bandarísku borgarinnar Atlanta í gærkvöldi. Meðal fórnarlamba hans voru tvær systur hans. Meira »

Samkynhneigðir „ekki ofsóttir“ í Úganda

Yoweri Museveni forseti Úganda.
Í gær, 22:29 Forseti Úganda fullyrti í dag að hann væri ekki hlynntur ofsóknum gegn samkynhneigðum í landi sínu, þrátt fyrir að alræmt frumvarp gegn samkynhneigð hafi að nýju verið lagt fyrir þingið. „Samkynhneigðir hafa, í litlum mæli, verið til í okkar hluta svörtu Afríku," sagði forsetinn í viðtali við BBC. Meira »

Heilsuleysi Chavez veldur óvissu

Hugo Chavez missti hárið vegna krabbameinsmeðferðar í fyrra. Læknar hafa nú fundið ný mein sem ...
Í gær, 21:38 Mikil óvissa ríkir nú um hver muni taka við stjórnartaumunum í Venesúela, eftir að forsetinn Húgó Chavez tilkynnti að krabbameinið sem hann barðist við væri komið upp að nýju. Chavez hefur verið allsráðandi í landinu frá árinu 1999. Forsetakosningar verða í haust. Meira »

Áfram mótmælt í Valencia

Niðurskurði í menntamálum mótmælt
Í gær, 21:11 Ekkert lát virðist ætla að vera á mótmælum í spænsku borginni Valencia en þúsundir tóku þátt í mótmælum þar í kvöld. Er niðurskurði í menntamálum og hörku sem lögregla hefur beitt gagnvart námsmönnum mótmælt. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
GALVANISERAÐUR HRINGSTIGI TIL SÖLU - NÝR
Mjög vandaður og sterkur stigi með handriði bæði á stiganum og á palli. Myndin ...
FJÓRHJÓLADRIFINN OG ÖFLUGUR - TIL SÖLU SUBARU FORESTER 4WD
SUBARU FORESTER 4WD ÁRG. 2003 EKINN. 176 Þ.KM. SJÁLFSKIPTUR. HEILSÁRSDEKK. ...
Fánasafn 1.200 stk. af Ísl. silkifánum !
Safnarar athugið ! Stórkostlegt safn til sölu ! Allt íslenskir fánar og frágengn...
Díva/Hársport, Allt fyrir hárið þitt 551 0102
Vantar þig ekki nýjan fluglærðan hárgreiðslumeistara, sem sér um kollinn á þér h...
 
Framkvæmdastjóri framkvæmdasviðs
Stjórnunarstörf
...
Landsst.
Félagsstarf
Landsst. 6012022319 IX...
Útboð - ríkiskaup

* Nýtt í auglýsingu 15137 ...
Deildarlæknir við geðdeild
Heilbrigðisþjónusta
Deildarlæknir við geðdeild Sjúkrahússins...