Dagur Valentínusar

Valentínusardagurinn er á fimmtudaginn, en á þeim degi seljast jafnan ótalmargir blómvendir. Blómabændur í Kólumbíu leggja nú nótt við dag að binda vendi og senda til Miami á Flórída, þaðan sem blómunum er dreift um gjörvöll Bandaríkin.

Um það bil 70% af allri sölu blómabænda í Kólumbíu er útflutningur til Bandaríkjanna, þannig að segja má að Valentínusardagurinn ráði úrslitum fyrir þá.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert