Þurfa aukið fé til neyðarhjálpar
Í nýrri skýrslu Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna sem kynnt var í gær, Humanitarian Action Report (HAR) 2008, kemur fram að UNICEF þarf 865 milljónir Bandaríkjadala, rúmlega 59 milljarða króna til að koma börnum og konum til hjálpar á neyðarsvæðum í 39 löndum víðsvegar um heiminn.
Í skýrslunni er m.a. að finna upplýsingar um lönd þar sem pólitísk átök geisa, svo sem Tsjad og Kenýa. Þar eru einnig upplýsingar um svæði sem skekin eru af átökum en rata ekki lengur í fréttir, að því er segir í tilkynningu frá UNICEF á Íslandi.
Skýrslan beinir athyglinni sömuleiðis að löndum sem orðið hafa illa út úr náttúruhamförum, eins og Mósambík þar sem mikil flóð hafa haft skelfilegar afleiðingar. Neyðaraðgerðum UNICEF er lýst í skýrslunni auk þess sem gerð er grein fyrir hve mikla fjármuni samtökin þurfa til að mæta þörfum barna og kvenna í neyð.
„300.000 manns hafa flúið heimili sín vegna átakanna í Kenýa og dvelja nú í flóttamannabúðum, þar af 150.000 börn. Áætlar UNICEF að 80.000 þessara barna séu yngri en fimm ára. Ástandið í Tsjad er nokkuð óljósara en þó má ætla að af þeim 52.000 sem hafa verið hraktar frá heimilum sínum séu 30.000 berskjaldaðar og þarfnast sérstakrar aðstoðar. UNICEF útvegar nauðsynlega hjálp á sviði heilsugæslu, menntunar og næringar," sagði Hilde Johnson, aðstoðarframkvæmdastjóri UNICEF á blaðamannafundi í Genf. „Á báðum þessum átakasvæðum, sem og á hinum 37 neyðarsvæðum sem fjallað er um í skýrslunni, bitnar neyðin fyrst og fremst á börnum og konum."
Í skýrslunni er einnig gerð grein fyrir fjárþörf UNICEF vegna mannúðaraðstoðar í Súdan. Þrátt fyrir að mikið uppbyggingar- og þróunarstarf sé nú unnið um gjörvalt Súdan, þjáist stór hluti þjóðarinnar – sérstaklega í Darfur-héraði. Talið er að 2,1 milljón manna séu á flótta innan héraðsins og hefur sá fjöldi farið vaxandi. Þúsundir barna frá Darfur, sem eru nú staðsett í Miðafríkulýðveldinu og Tsjad, þurfa nauðsynlega á aðstoð og vernd að halda. Verkefni sem UNICEF tekur þátt í í Súdan kosta um 150 milljón bandaríkjadali og hafa að markmiði að efla heilsugæslu, næringu og menntun, auka aðgang að hreinu drykkjarvatni og viðunandi hreinlætisaðstöðu og efla barnavernd.
Þrátt fyrir að ástandið í Vestur-Afríku sé ekki áberandi í umræðunni, eins og fram kemur í Humanitarian Action Report 2008, er nærri ein milljón manna á flótta vegna átaka á svæðinu. Ein afleiðingin er vannæring og kemur hún sérstaklega illa niður á ungum börnum. Í Lýðveldinu Kongó má t.d. rekja meira en helming allra dauðsfalla ungra barna til vannæringar.
Í skýrslunni er athyglinni beint að þeirri staðreynd að konur og börn eru í auknu mæli fórnarlömb skipulagðra nauðgana, sem mismunandi hópar beita oft kerfisbundið gegn óvinum sínum.
„Við verðum að tryggja börnum og konum eins mikla vernd og mögulegt er gegn þessum grimmdarverkum. Og við verðum sömuleiðis að sjá til þess að þeir sem bera ábyrgð á slíkum glæpum séu á endanum leiddir fyrir lög og rétt," áréttaði Johnson.



































