MySpace í viðræðum við útgáfurisana

MySpace nýtur gríðarlegra vinsælda. ekki síst meðal tónlistarunnenda

MySpace nýtur gríðarlegra vinsælda. ekki síst meðal tónlistarunnenda

Eigendur vefsvæðisins MySpace eiga nú í viðræðum við fjórar stærstu plötuútgáfur heims um að setja á laggirnar tónlistarþjónustu á vefnum vinsæla. Ætlunin er að hægt verði að hlusta ókeypis, en sækja tónlist gegn gjaldi og nota í mp3-spilurum.

MySpace er ein vinsælasta vefsíða heims, helsti keppinauturinn Facebook hefur hins vegar sótt mjög í sig veðrið undanfarið og leita stjórnendur vefjarins nú leiða til að halda forskotinu.

Vefsíðan er þegar þekkt meðal tónlistarunnenda en aragrúi hljómsveita notar vefsíðuna til að kynna tónlist sína og er þegar hægt að kaupa tónlist beint af vefsíðum margra hljómsveita og tónlistarmanna.

Ekki er ljóst hversu langt á veg viðræður eru komnar en plötufyrirtækin fjögur, Universal, Sony BMG, Warner Music og EMI hafa ekki viljað tjá sig um málið.
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Erlent »

Fimm blaðamenn handteknir

16:03 Breska lögreglan handtók í dag fimm blaðamenn hjá breska blaðinu The Sun. Handtaka er að sögn lögreglunnar liður í rannsókn hennar á greiðslum blaðsins til lögreglu- og embættismanna fyrir upplýsingar. Meira »
Skemmtiferðaskipið Costa Concordia marar nú í hálfu kafi við eyjuna Giglio.

Lét sér fátt um finnast við strandið

15:44 Myndband, sem tekið var á ítalska skemmtiferðaskipinu Costa Concordia, skömmu eftir að það steytti á skeri 13. janúar síðastliðinn, sýnir að skipstjóri skipsins lét sér fátt um finnast við strandið. Lögregla hyggst nota upptökuna við rannsókn sína. Meira »

Hóta vesturlöndum og Ísrael

15:34 Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans sagði í dag að heimurinn muni fljótlega fá vitneskju um framfarir í kjarnorkuáætlun Írans en Bandaríkin og ríki Evrópusambandsins hafa hert þvinganir á Íran vegna rannsókna sinna á sviði kjarnorku. Meira »

Hvatt til fjöldamótmæla á Spáni

Leiðtogar tveggja stærstu verkalýðsfélaga á Spáni; Ignacio Fernandez Toxo hjá CCOO og Candido Mendez hjá ...
14:37 Tvö stærstu verkalýðsfélög Spánar hvetja til fjöldamótmæla eftir rúma viku, sunnudaginn 19. febrúar. Mótmæla á niðurskurðaráformum ríkisstjórnarinnar. Meira »

Barist um bandarísku sálina

Mitt Romney.
12:45 Mitt Romney, frambjóðandi í forvali Repúblikana til forsetaframboðs, lofar því að sameina Repúblikana og að sigra Barack Obama. Hann segir kosningarnar vera „baráttu um bandarísku sálina“. Forkosningar fara fram í Maine-ríki í dag. Meira »

Íranar fagna byltingarafmæli myndskeið

Íranar fagna byltingarafmæli
15:08 Þúsundir Írana fagna nú 33 ára afmæli íslamsbyltingarinnar í landinu, en hún var gerð árið 1979. Fólkið veifaði fánum landsins og hampaði stórum myndum af leiðtoga byltingarinnar, Ayatollah Ruhollah Khomeini og arftaka hans Ayatollah Ali Khamenei. Meira »

Gingrich og Santorum herja á Obama

Rick Santorum.
12:56 „Við munum ekki biðjast afsökunar og hverfa frá þeim gildum okkar, sem gera land okkar svo stórkostlegt, til þess að geta unnið sigur í nóvember“ sagði Rick Santorum, frambjóðandi í forvali Repúblikana til forsetaframboðs, á ráðstefnu í morgun. Meira »

Ásaka Breta um hervæðingu

12:42 Utanríkisráðherra Argentínu, Hector Timberman, hefur sakað bresk stjórnvöld um að koma fyrir kjarnorkuvopnum við Falklandseyjar. Stjórnmálamenn, sérstaklega í Argentínu, hafa undanfarið haft sig nokkuð frami vegna deilunnar um yfirráð yfir Falklandseyjum en í ár verða 30 ár liðin Meira »

Dóná fraus í nótt

Skip siglir í klakahröngli á Dóná í gær. Áin er nú frosin á um 11 ...
11:29 Yfirborðsvatn Dónár fraus í nótt, skammt frá höfninni í Silistra í Búlgaríu. Þetta er í fyrsta skipti í 20 ár sem áin frýs.  Meira »

Saadi Gaddafi boðar byltingu

Saadi Gaddafi á velmektarárum sínum með keppnistreyju sína.
09:49 Saadi Gaddafi, einn sona Múammars Gaddafi heitins, fyrrum forseta Líbíu, segir að ný bylting kraumi meðal Líbíumanna sem séu óánægðir með nýja stjórnarhætti í landinu. Hann heitir því að snúa aftur til síns heima, en hann flúði til Níger. Meira »

Segja al-Qaeda bera ábyrgð í Sýrlandi

Ungir drengir vopnaðir byssum og sprengjum sjást á al-Qaeda æfingu.
10:55 Íraskir al-Qaeda liðar eru sagðir bera ábyrgð á tveimur sprengjum sem nýlega sprungu í borginni Damaskus í Sýrlandi. Að auki eru samtökin talin vera ábyrg fyrir sprengjunum tveimur sem sprungu í sýrlensku borginni Aleppo í gær með þeim afleiðingum að 28 létu lífið. Meira »

Rómarborg snæviþakin myndskeið

Enn snjóar í Evrópu
09:34 Ekkert lát er á frosti og snjókomu á meginlandi Evrópu og liggur nýfallin mjöll eins og hvítt teppi yfir Rómarborg, en það mun afar fátíð sjón. Meira »

Ofbeldið í Sýrlandi eykst myndskeið

Ofbeldið í Sýrlandi heldur áfram
09:01 Að minnsta kosti 28 létu lífið og 235 særðust þegar tvær bílsprengjur sprungu í borginni Aleppo í Sýrlandi í gær. Meðal hinna látnu voru börn Skriðdrekar, búnir þungvopnum, óku inn í borgina Homs. Meira »

Árás á vefsvæði CIA

Grímur tengdar samtökunum Anonymous.
Í gær, 23:16 Vefsvæði bandarísku leyniþjónustunnar, CIA, er óaðgengilegt eftir tölvuárás samtakanna Anonymous fyrr í dag. Meðlimir samtakanna hafa fagnað sigri á samfélagsvefnum Twitter á sama tíma og talsmaður CIA sagði við fréttaveituna AFP að málið væri í rannsókn. Meira »

Mynd ársins tekin í Jemen

Mynd ársins. Kona heldur slösuðum ættingja að brjósti sínu í mosku á meðan átökunum í ...
Í gær, 20:22 Spænski ljósmyndarinn Samuel Aranda á bestu mynd ársins 2011 að mati World Press Photo. Á myndinni sést jemensk kona halda að brjósti sínu slösuðum ættingja eftir uppreisnina í borginni Sana. Myndin var tekin 15. október á síðasta ári og birt í New York Times. Meira »

Reyna að losna við Grikki

Í gær, 23:50 „Það er aðeins ein leið til þess að túlka nýjar kröfur frá fjármálaráðherrum evrusvæðisins í gærkvöldi fyrir því að samþykkja nýjan 130 milljarða evra björgunarpakka fyrir Grikkland. Það er að þeir séu núna viljandi að reyna að koma Grikkjum út af svæðinu.“ Meira »

Samsteypustjórnin samþykkti skilyrðin myndskeið

Mótmæli í Grikklandi
Í gær, 23:04 Gríska samsteypustjórnin samþykkti í kvöld samhljóða að fallast á þau skilyrði sem gerð eru til þess að greitt verði til Grikklands 130 milljarða evra neyðarlán. Talið er að gríska þingið muni greiða atkvæði um sömu skilyrði, niðurskurð og aðhald, á morgun. Meira »

Banna eyrnastýfingu hunda

Dobermann hundur skott- og eyrnastýfður.
Í gær, 20:07 Yfirvöld í fjórum fylkjum Kanada hafa nú bannað eyrnastýfingu hunda. Aðgerðin er framkvæmd á hvolpum og felur í sér að stór hluti eyrans er fjarlægður og oft gerð til að gera hundana vígalegri. Meira »

Erlend málefni

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Til sölu Polaris 440 PRO XR árg 2003
Til sölu vélsleði Polaris 440 PRO XR árg 2003. Tvígengisvél í góðu standi, verð...
VANTAR Á SKRÁ.
Vantar bíla á söluskrá Mikil eftirspurn! Lágmarkssöl...
Good MASSAGE!!!
GOOD MASSAGE!! 6948251...
Taktu hundinn með til Akureyrar
Gisting í nýstandsettum herbergjum á besta stað í bænum. Gott verð. Upplýsingar ...
 
Framhald uppboðs
Nauðungarsala
Uppboð Framhald uppboðs á...
Stúkan hamar
Félagsstarf
l HAMAR 6012020719 III...
Yfirkokkur
Hótel- og veitingarekstur
Yfirkokkur Fjalakötturinn Restaura...
Sölumaður óskast
Afgreiðsla/verslun
Sölumaður óskast til starfa í húsgag...