Látnum fjölgar eftir sjálfsvígsárás í Írak

Pílagrími sést hér ganga fram hjá íröskum hermanni á leið …
Pílagrími sést hér ganga fram hjá íröskum hermanni á leið til Kerbala þar sem trúarhátíð er haldin. MAHMOUD RAOUF MAHMOUD

Að minnsta kosti 40 létu lífið og 60 særðust í sjálfsvígsárás sem beint var gegn sjíta pílagrímum í bænum Iskandariya, suður af Bagdad í dag.  Árásin var gerð á þjóðvegi í átt að Karbala borg, þar sem trúarhátið til heiðurs sonarsonar Múhameðs spámanns er haldin. 

Á fréttavef BBC kemur fram að árásarmaðurinn fór inn á hvíldarstað pílagrímanna og sprengdi sig upp. 

Önnur árás var gerð á pílagríma í dag en hún var gerð í hverfinu Doura í  Bagdad.  Þrír létu lífið og 49 særðust þegar uppreisnarmenn réðust gegn pílagrímum á göngu, og sprengdu í fyrstu vegsprengju en hófu svo skothríð.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert