Odinga lofar endurbyggingu í Kenýa
Mwai Kibaki, forseti Kenýa, og Raila Odinga, leiðtogi stjórnarandstöðunnar, takast í hendur eftir að samingar tókust á milli þeirra Í Nairobi í gær. AP
Raila Odinga, útnefndur forsætisráðherra Kenýa, segir endurbyggingu í Kenýa hafa forgang og heitir því að koma á sáttum og hjálpa þeim sem hafa misst heimili sín, tapað eignum eða starfi vegna hættuástands sem skapaðist í landinu í kjölfar umdeildra kosningaúrslita í forsetakosningum.
Á fréttavef BBC kemur fram að með aðstoð Kofi Annans, fyrrum framkvæmdastjóra SÞ, tókust samningar í gær milli Mwai Kibaki, forseta Kenýa og Raila Odinga, leiðtoga stjórnarandstöðunnar, um að deila völdum og mynda samsteypustjórn.
Margir Kenýabúar hafa fagnað því að samningar tókust en aðrir sem þurftu að flýja heimili sín efast um hvort hatur, sem skapast hefur milli þjóðflokka, geti verið leyst.
Samningaviðræður munu halda áfram í dag til þess að ræða efnahagsmál og stjórnarskrána. Odinga segir samsteypustjórn eiga mikið verk fyrir höndum og segir stjórnarskrár og lagalegar úrbætur brýnastar en einnig þurfi að taka á "sögulegu óréttlæti."
Odinga vonast eftir nýrri stjórnarskrá innan árs og öðrum kosningum eftir tvö ár, en Annan mælti með að stjórnarfar yrði endurskoðað eftir tvö ár.
Yfir 600.000 manns neyddust til að yfirgefa heimili sín eftir að ofbeldisalda braust út í Kenýa í kjölfar forsetakosninga í desember, en ósamkomulag var um úrslitin. 1500 manns hafa látið lífið í átökum.
Erlent »
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- „Cameron stalst aðeins út fyrir“
- Tollurinn með milljarðamálverk í sinni vörslu
- DNA-próf sannar uppruna þorsks
- Kínverskar eftirlíkingar í bandaríska hernum
- Mannskætt lestarslys
- Einkarekin geimflaug á loft
- Kunnugleg andlit við kjötkatlana
- Fjögur börn létust í sprengjuárás í Írak
- Fimm létust í sprengjuárás í Damaskus
- Glæpir gegn mannkyni í Sýrlandi?
- Táknræn athöfn haldin
- Harður jarðskjálfti í Búlgaríu
Mánudagur, 21.5.2012
- Fimmtungur sett kynferðislegar myndir á netið
-
Frakkar ætla frá Afganistan
- Myrti bróður sinn og sundurlimaði
- Vilja merkja vörur frá Ísrael
-
Egyptar kjósa forseta
- Vonir Le Pens um þingsæti í uppnámi
- Grikkir fá 23% lægri laun
- Varar Breta við íslenskri einangrun
- Margir heimilislausir eftir skjálfta
- Getnir eftir andlát föður og arflausir
- Fimm stjörnu flokkurinn vann sigur
- Dæmdur fyrir upptöku af herbergisfélaga
- Mannskætt rútuslys í Albaníu
- Óttast blóðuga borgarastyrjöld
- Kastaði börnum sínum fram af svölum
- Vilja Grikki áfram á evrusvæðinu
- Vatnið var rautt af blóði
- Þorpið fór á 84,6 milljónir
- Ráðherra til rannsóknar
- „Þið munuð deyja í dag, marxistar“
- Saleh lagður inn á spítala
- 14 aftökur í Íran í dag
- Náðist á upptöku
- Þúsundir hafast við í neyðarskýlum
- „Skrímslið frá Riga“ fékk 18 ára dóm
- Tekur við verðlaununum 16. júní
- Bandaríkjamenn og Pakistanar deila í Chicago
- Bandamenn Pútín í stjórn
- Áfram gert ráð fyrir aðild Grikkja
- Sjálfsmorðsárás í Jemen
- Þrír fórust á Everest
- Strauss-Kahn sakaður um hópnauðgun
- Átök í Líbanon
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Sýrland
- News of the World
- Strauss-Kahn handtekinn
Svipaðar fréttir
- Sunnudagur, 13. apríl 2008, Erlent Samsteypustjórn mynduð í Kenýa
- Þriðjudagur, 18. mars 2008, Erlent Stjórnarskrárbreytingar í Kenýa
- Fimmtudagur, 24. janúar 2008, Erlent Pólitískir andstæðingar takast í hendur
- Miðvikudagur, 27. febrúar 2008, Erlent Stjórnarandstaðan í Kenýa aflýsir mótmælum
- Þriðjudagur, 15. janúar 2008, Erlent Hætta talin á átökum í Kenýa
-
„Það má dúndra“
-
Komast leikandi upp úr riðlinum
-
Úlfar mun fylgjast með töktum þeirra bestu
-
Heilsuræktin í Elliðaárdalnum
-
Innsýn í reksturinn
-
Logi: Fyrir okkur er þetta flugeldasýning
-
Þorvaldur: Hitt liðið barðist meira
-
Beirut residents fear sectarian flare-up


































