Sviknar spúsur í sviðsljósinu

Eliot Spitzer ríkisstjóri New York og eiginkona hans Silda er hann baðst afsökunar á "óafsakanlegri" ... stækka

Eliot Spitzer ríkisstjóri New York og eiginkona hans Silda er hann baðst afsökunar á "óafsakanlegri" framkomu sinni. AP

Töluverð umræða fer nú fram um það í Bandaríkjunum hvers vegna eiginkonur stjórnmálamanna, sem orðið hafa uppvísir að kynlífshneykslum kjósi hvað eftir annað að standa með þeim og við hlið þeira er þeir koma sneyptir fyrir þjóðina til að biðjast afsökunar á framkomu sinni. Þetta kemur fram á fréttavef CNN.

„Af hverju mæta þær. Ég vil bara sjá einhverja þeirra -- Hillary, Sildu – standa á tröppum Hvíta hússins eða ríkisstjórabústaðarins, stappa niður fótunum og segja: Ég held húsinu.” segir bloggarinn Amy Ephron á huffingtonpost.com og vísar þar til Hollary Rodham Clinton, fyrrum forsetafrúar, og Sildu Spitzer, eiginkonu Eliot Spitzer ríkisstjóra New York.

„Við gerum það allar af persónulegum ástæðum,” segir Matos McGreevey, sem stóð með eiginmanni sínum Jim McGreevey ríkisstjóra í New Jersey er hann viðurkenndi samkynhneigð og ástarsamband við ungan aðstoðarmann.

McGreevey segist hafa endurlifað það andartak er hún kom fyrir alþjóð með manni sínum er hún sá myndir af Spitzer-hjónunum . „Ég gerði það vegna þess að hann var eiginmaður minn. Ég hafði alltaf stutt hann og ég elskaði hann. Ég átti dóttur og vildi að hún sæi að ég stæði með föður hennar,” segir hún en McGreevey hjónin eru nú að skilja.

Joanna Coles, ritstjóri kvennatímaritsins Marie Claire, tekur í sama streng og segir að í augnablikinu eigi Silda Spitzer í raun ekki annarra kosta völ en að standa með eiginmanni sínum. „Fólk er fljótt að dæma hana en svona eru hlutirnir þegar annar aðilinn hefir gefið feril sinn upp á bátinn til að styðja hinn,” segir hún.

„Mér hefði þótt mjög skrýtið hefði hún ekki verið þarna. Þetta er sá samningur sem þau hafa gert sín á milli. Hún valdi að gerast eiginkona ríkisstjóra og hún hefur sinnt því starfi af mikilli samviskusemi og mjög vel."

Silda Spitzer lærði lögfræði við Harvard háskóla og var á mun hærri launum en eiginmaður hennar er hún ákvað að hætta að vinna úti til að styðja hann og ala upp þrjár dætur þeirra. „Það var mjög flókið og tilfinningaþrungið þegar ég hætti að vinna,” sagði hún í viðtali sem birt var í tímaritinu Vogue á síðasta ári.

„Þetta var ekki það sem ég vildi gera en ég hef aldrei efast um að það hafi verið rétt ákvörðun fyrir okkur. Fólk vill ekki gefa drauma sína upp á bátinn en það  verður einnig að takast á við raunveruleika hversdagsins. Þegar öllu var á botninn hvolft þá skipti það mig mestu máli að fjölskyldulífið gengi upp.

Komið hefur fram í umræðu um málið í Bandaríkjunum að  Sildu Spitzer sé einstaklega vel liðin og að á samta tíma og Eliot Spitzer hafi verið mjög umdeildur stjórnmálamaður hafi varla nokkur maður sagt neikvætt orð um konu hans.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent »

Kjörstaðir voru opnaðir í morgun.

Forsetakosningar í Egyptalandi hafnar

06:15 Fyrstu frjálsu forsetakosningar í sögu Egyptalands hefjast í dag, 15 mánuðum eftir að Hosni Múbarak hröklaðist frá völdum. Biðraðir mynduðust þegar kjörstaðir opnuðu í morgun. Meira »
Réttarhöldunum yfir norska fjöldamorðingjanum Anders Behring Breivik fer senn að ljúka.

Breivik fær tíma til útskýringa

Í gær, 22:15 Norski fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik mun fá meiri tíma en til stóð til að tjá sig við lok réttarhaldanna, en áður hafði verið gert ráð fyrir. Búist er við að þeim ljúki 6. júní. Meira »

Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu

Í gær, 22:00 Meira en 57.000 manns eru í fangelsi á Kúbu, þar af hafa um 23.000 einhvern starfa og fá greitt fyrir. Hluti þeirra er á bak við lá og slá vegna stjórnmálaskoðana sinna. Meira »

Kennarar og nemendur mótmæla

Frá mótmælunum á Spáni í dag.
Í gær, 20:09 Tugþúsundir kennara og nemenda á Spáni mótmæltu í dag fyrirhuguðum niðurskurði í menntamálum í landinu. Fólkið lagði niður störf og gekk fylktu liði um götur og stræti Spánar, margir í grænum stuttermabolum sem eru orðnir að einkenni mótmælanna. Meira »

Væri upphafið að endalokum evrunnar

Írski þingmaðurinn Richard Boyd Barrett.
Í gær, 19:39 Evrópusambandið mun halda áfram að styðja Írland og veita því neyðaraðstoð ef á þarf að halda jafnvel þó að írskir kjósendur hafni fjármálastöðugleikasáttmála sambandsins. Meira »

Sagðist vera með sprengju í líkamanum

Ein af flugvélum bandaríska flugfélagsins US Airways.
Í gær, 20:32 Bandarískri farþegaflugvél flugfélagsins US Airways, sem var á leiðinni frá París til borgarinnar Charlotte í Norður-Karólínuríki í Bandaríkjunum var lent snarlega eftir að frönsk kona sem var farþegi um borð, sagðist vera með „ígræddan búnað“ sem gæti grandað vélinni. Meira »

14 ára skaut á skólafélaga

Lögregla var með mikinn viðbúnað í bænum Memmingen í Suður-Þýskalandi þegar 14 ára piltur skaut ...
Í gær, 19:47 Fjórtán ára drengur skaut á skólafélaga sína í bænum Memmingen, skammt frá borginni München í Suður-Þýskalandi og hljóp síðan á brott. Honum var veitt eftirför og skaut hann þá nokkrum skotum til viðbótar. Engan sakaði og hefur pilturinn nú verið tekinn höndum og mun sæta geðrannsókn. Meira »

Ummæli prests vekja reiði

Fánar samkynhneigðra blakta á lofti í Gleðigöngunni í Reykjavík. Mannréttindi samkynhneigðra eru ekki alls staðar ...
Í gær, 17:31 Ummæli prests baptistasöfnuðar í Norður-Karólínuríki í Bandaríkjunum um að safna ætti öllu samkynhneigðu fólki saman, reka það inn í rétt og láta það síðan deyja drottni sínum, hafa vakið mikla reiði víða. Presturinn lét svo ummælt í predikun sem tekin var upp á myndband og síðan sett á YouTube. Meira »

Gríski harmleikurinn heldur áfram

Christine Lagarde, framkvæmdastjóri AGS.
Í gær, 17:10 Christine Lagarde, framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, segir að vinstriflokkarnir í Grikklandi verði að horfast í augu við þann niðurskurð sem nauðsynlegur sé, eigi Grikkir að komast upp úr þeim efnahagslega öldudal sem þeir eru nú í. Meira »

Neyðarástand á Ítalíu

Íbúðarhús sem skemmdist í jarðskjálftanum í bænum Finale Emila skammt frá borginni Modena.
Í gær, 16:46 Neyðarástandi hefur verið lýst yfir á Norðaustur-Ítalíu, þar sem öflugur jarðskjálfti sem mældist 6 stig, reið yfir í fyrradag. Um 5.000 manns eru heimilislaus eftir að fjöldi íbúðarhúsa skemmdist í skjálftanum og ítalska ríkisstjórnin hefur lofað því að fé verði veitt til uppbyggingar. Meira »

Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift

Í gær, 17:00 Þrjátíu pör sem gefin voru saman fyrir um ári með borgaralegum hætti í Uppsölum í Svíþjóð eru enn þrátt fyrir það ógift. Í ljós kom að borgarstjórinn sem gaf pörin saman hafði ekki lengur réttindi til þess þegar brúðkaupin fóru fram. Meira »

Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó

Á hverju ári eru um 100.000 konur í Suður-Ameríku seldar mansali milli landa.
Í gær, 16:15 Á hverju ári eru þúsundir kvenna þvingaðar í vændi og seldar frá Mexíkó til Bandaríkjanna. Í úttekt BBC á mansali í Mexíkó kemur fram að stúlkurnar séu flestar á aldrinum 14-19 ára og séu þvingaðar til að þjónusta 25-30 karla á hverri vakt. Flestar eru sendar til New York. Meira »

Kæfðu dóttur sína með plastpoka

Shafilea Ahmed.
Í gær, 16:09 Foreldrar breskrar stúlku hafa verið ákærðir fyrir að kæfa dóttur sína með því að troða plastpoka upp í hana og kæfa hana. Fjögur börn þeirra horfðu upp á systur sína myrta, en í dag lýsti eitt þeirra fyrir dómi því sem gerðist þegar stúlkan lést. Meira »

Stuðningur eykst við jafnaðarmenn

Angela Merkel, kanslari Þýskalands.
Í gær, 15:51 Stuðningur við þýska jafnaðarmenn hefur aukist verulega samkvæmt nýrri skoðanakönnun fyrir dagblaðið Bild en samkvæmt henni mælast þeir nú með 32% fylgi á meðan helsti keppinauturinn, kristilegir demókratar undir forystu Angelu Merkel kanslara Þýskalands, mælist með 33%. Meira »

Mótmæli kveðin niður í Bakú

Júróvisjón söngvakeppnin fer ekki framhjá neinum sem staddur er í Bakú í Aserbaídsjan, en mótmæli ...
Í gær, 15:16 Allra augu í Evrópu verða á Aserbaídsjan í kvöld, þegar fyrri forkeppni Evróvisjónsöngvakeppninnar fer fram í Bakú. Raddir mótmælenda þar í landi heyrast hins vegar ekki víða. Í gærkvöldi stöðvaði lögregla í Bakú af hörku um 100 mótmælendur sem kröfðust m.a. frelsunar pólitískra fanga. Meira »

Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn

Zikovs skaut Egle, sem var óvopnaður, þrisvar sinnum. Með Egle í för var ung dóttir ...
Í gær, 15:52 Héraðsdómstóll í Lettlandi hefur dæmt mann í 17 ára fangelsi fyrir að hafa skotið mann til bana í kvikmyndahúsi. Lögfræðingurinn Nikolajs Zikovs skaut bankastarfsmanninn Aigars Egle til bana í kjölfar rifrildis, en Zikovs þótti Egle hafa of hátt þegar hann var að borða poppkorn. Meira »

Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands

Í gær, 15:16 Þjóðaratkvæðagreiðsla um svonefndan fjármálastöðugleikasáttmála innan Evrópusambandsins fer fram á Írlandi 31. maí næstkomandi en Írar eru einir þjóða innan sambandsins sem munu kjósa um sáttmálann, sem ætlað er að stuðla að efnahagslegum stöðugleika á evrusvæðinu og auknum samruna innan þess, þar sem írska stjórnarskráin krefst þess. Meira »

Tók 7 ára stúlku í gíslingu

Í gær, 15:14 Tékknesk kona gekk inn í skóla í borginni Havirov, stakk kennara nokkrum sinnum með hníf og tók sjö ára stúlku í gíslingu. Lögreglan handtók hana skömmu síðar. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Skoda Octavia árg. 2005 til sölu
Skoda Octavia, nýskráður í desember 2005 til sölu. Ekinn 117.212 km. Diesel T...
Öflugar kraftviftur - Íshúsið ehf
Eigum á lager úrval af mjög öflugum kraftviftum. Frekari upplýsingar á www.ishus...
Fjarnámskeið á tilboði, aðeins 9.900 kr.
Lærðu ljósmyndun á Netinu. Á fjarnamskeid.is er hægt að læra allt um ljósmyndun,...
SAUMAVÉLAR
Saumavélar- saumavélaviðgerðir Nýjar og notaðar...
 
15262 15263 og 15264 frístunda- og gestahús

Tilboð óskast í þrjú frístunda- og...
Menntunarsjóður mæðrastyrksnefndar reykjavíkur

MENNTUNARSJÓÐUR Mæðrastyrksnefndar Re...
Sýslumaðurinn í reykjavík - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Borgarbókavörður
Sérfræðistörf
Laus er til umsóknar staða borgarbókava...