Ný upptaka með bin Laden
Arabíska sjónvarpsstöðin Al-Jazeera sýndi í kvöld upptöku sem talin er vera úr nýju myndbandi þar sem Osama bin Laden, leiðtogi al-Qaida, gagnrýnir viðræður Palestínumanna við Ísraela og hvetur til heilags stríðs til stuðnings Palestínu. Er þetta annað myndbandið sem birtist með bin Laden á tveimur dögum.
Er þetta í fyrsta skipti sem bin Laden fjallar um málefni Palestínu frá því að Hamas náði yfirráðum yfir Gazaströndinni og Ísraelsmenn hófu árásir á Gazaströndina sem svar við eldflaugaárásum herskárra Palestínumanna á ísraelska bæi. Í myndbandinu segir bin Laden að Palestínumenn nái ekki Palestínu á sitt vald á ný með samningaviðræðum heldur þurfi að beita eldi og stáli. Hvatti hann Palestínumenn til þess að styðja heilagt stríð al-Qaida í Írak ef þeir geti ekki barist gegn Ísraelsmönnum á svæðinu í kringum Jerúsalem.
Al-Jazeera greindi ekki frá því hvernig upptakan komst í þeirra hendur en með hljóðupptökunni var sýnd gömul mynd af bin Laden þar sem hann er með hvítan höfuðklút og í hefðbundnum klæðnaði Araba.
Í myndbandinu sem birtist í gær ásakaði bin Laden Benedikt XVI páfa um að styðja nýja krossferð gegn íslam og varaði við því að birtingu skopteikninga af Múhameð spámanni yrði svarað. Telja ýmsir að með myndbandinu sé bin Laden að vara við nýrri árás á Evrópu.
Ávarpið, sem birtist á vef herskárra samtaka, sem áður hafa birt ávörp
frá leiðtogum al-Qaeda. Með birtist merki al-Sahab, fjölmiðlaarms
samtakanna og ljósmynd af bin Laden með AK-47 riffil. Boðað hafði verið
að bin Laden myndi senda frá sér ávarp í tilefni af því að fimm ár eru
liðin frá innrásinni í Írak.
Í dag bað páfi fólk í kaþólsku kirkjunni að óttast ekkert þrátt fyrir orð bin Laden í myndbandinu í gær.
Bloggað um fréttina
-
Gunnar Th. Gunnarsson Skop -
Örn Ingólfsson Ósómi Bin Laden -
Ólafur Als Skilaboðin eru skýr: Enginn friður! -
Stefán Friðrik Stefánsson Bergmál frá hellisbúanum Osama Bin Laden -
Þorsteinn Gunnar Jónsson Ég er búinn að fá mig fullsaddan af þessum morðóðu ... -
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir Eru þeir sami maðurinn?? -
Jóhannes Ragnarsson Undirrót allra lasta ... -
veffari Full ástæða til að hlusta. -
Guðrún María Óskarsdóttir. Fær athygli fjölmiðla eins og venjulega. -
Jón Ingi Cæsarsson Einangraður karlfauskur í helli heldur heiminum í þumalskrúfu. -
Björn Heiðdal Grín og gaman með Bin Laden. -
Sigurður Þórðarson Er Bin Laden í Wasington? -
Ómar Bjarki Kristjánsson Hljóðband
Erlent »
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- „Cameron stalst aðeins út fyrir“
- Tollurinn með milljarðamálverk í sinni vörslu
- DNA-próf sannar uppruna þorsks
- Kínverskar eftirlíkingar í bandaríska hernum
- Mannskætt lestarslys
- Einkarekin geimflaug á loft
- Kunnugleg andlit við kjötkatlana
- Fjögur börn létust í sprengjuárás í Írak
- Fimm létust í sprengjuárás í Damaskus
- Glæpir gegn mannkyni í Sýrlandi?
- Táknræn athöfn haldin
- Harður jarðskjálfti í Búlgaríu
Mánudagur, 21.5.2012
- Fimmtungur sett kynferðislegar myndir á netið
-
Frakkar ætla frá Afganistan
- Myrti bróður sinn og sundurlimaði
- Vilja merkja vörur frá Ísrael
-
Egyptar kjósa forseta
- Vonir Le Pens um þingsæti í uppnámi
- Grikkir fá 23% lægri laun
- Varar Breta við íslenskri einangrun
- Margir heimilislausir eftir skjálfta
- Getnir eftir andlát föður og arflausir
- Fimm stjörnu flokkurinn vann sigur
- Dæmdur fyrir upptöku af herbergisfélaga
- Mannskætt rútuslys í Albaníu
- Óttast blóðuga borgarastyrjöld
- Kastaði börnum sínum fram af svölum
- Vilja Grikki áfram á evrusvæðinu
- Vatnið var rautt af blóði
- Þorpið fór á 84,6 milljónir
- Ráðherra til rannsóknar
- „Þið munuð deyja í dag, marxistar“
- Saleh lagður inn á spítala
- 14 aftökur í Íran í dag
- Náðist á upptöku
- Þúsundir hafast við í neyðarskýlum
- „Skrímslið frá Riga“ fékk 18 ára dóm
- Tekur við verðlaununum 16. júní
- Bandaríkjamenn og Pakistanar deila í Chicago
- Bandamenn Pútín í stjórn
- Áfram gert ráð fyrir aðild Grikkja
- Sjálfsmorðsárás í Jemen
- Þrír fórust á Everest
- Strauss-Kahn sakaður um hópnauðgun
- Átök í Líbanon
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Sýrland
- News of the World
- Strauss-Kahn handtekinn
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 14. janúar 2009, Erlent Bin Laden hvetur til heilags stríðs gegn Ísraelum
- Mánudagur, 10. september 2007, Erlent Von á nýju myndbandi með Osama bin Laden
- Þriðjudagur, 11. september 2007, Erlent Boðað myndskeið með Osama bin Laden birt
- Föstudagur, 7. september 2007, Erlent Al-Jazeera sýndi myndband með bin Laden
- Mánudagur, 8. september 2008, Erlent Al-Qaeda gagnrýnir Írana
-
„Það má dúndra“
-
Komast leikandi upp úr riðlinum
-
Úlfar mun fylgjast með töktum þeirra bestu
-
Heilsuræktin í Elliðaárdalnum
-
Innsýn í reksturinn
-
Logi: Fyrir okkur er þetta flugeldasýning
-
Þorvaldur: Hitt liðið barðist meira
-
Beirut residents fear sectarian flare-up


































