Drekahagkerfið vígvæðist

Kínverskir ráðamenn reyna að gera sem minnst úr því en það dylst engum sem fylgist með hernaðaruppbyggingunni í Kína að áherslan er á að efla varnir landsins hratt og örugglega og gera herinn í stakk búinn til að heyja hátæknistríð.

Drekahagkerfið hefur þanist út undanfarin ár og hagvöxtur verið um og yfir tíu prósentin, þróun sem veitt hefur verið mun meiri athygli en það svigrúm sem slíkur auður skapar til hernaðaruppbyggingar: Árið í ár er það tuttugasta í röðinni sem útgjöld Kínverja til hermála aukast um að minnsta kosti tíu prósent.

Tölurnar tala sínu máli (sjá súlurnar til hliðar). Árið 1998 námu uppgefin útgjöld til hermála 11,3 milljörðum dala, nú tíu árum síðar er ráðgert að 58,75 milljörðum dala verði varið í hermál, eða sem svarar 3.887 milljörðum króna á núvirði. Og ekki nóg með það, bandarísk hermálayfirvöld áætla að hin raunverulegu útgjöld Kínverja til hersins séu tvöfalt hærri (sumir segja þrefalt), sem þýðir að þau munu í ár nema að minnsta kosti yfir 7.000 milljörðum króna.

Fyrir slíkar upphæðir má kaupa mikið af hergögnum og greiða gríðarlegum fjölda hermanna laun, enda launakostnaður miklum mun lægri en t.a.m. í Bandaríkjunum.

Gera lítið úr umsvifum sínum

Venju samkvæmt reyna kínversk stjórnvöld að gera sem minnst úr fjárhæðunum og segja að rekja megi aukninguna til himinhás olíuverðs og hækkandi launakostnaðar. Útgjöld sem hlutfall af vergri þjóðarframleiðslu séu lægri en í Bandaríkjunum, Bretlandi, Frakklandi og Rússlandi, hinum fastafulltrúunum í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna.

Þá má ekki gleyma því að Bandaríkjastjórn ver enn sem komið er miklu hærri fjárhæðum til hermála og er skammt síðan stjórn Bush forseta fór fram á 515 milljarða dala fjárveitingu til hersins, að frátöldum aukafjárveitingum til stríðsrekstursins í Írak og Afganistan.

Og þrátt fyrir að kínverska hagkerfið fari líklega senn fram úr því bandaríska að stærð og umfangi er áætlað að samanlögð stærð hagkerfa aðildarríkja Efnahags- og þróunarstofnunarinnar, OECD, verði um 105 billjarðar Bandaríkjadala (milljón milljónir dala) árið 2030, það kínverska 63 billjarðar dala miðað við kaupmáttarjöfnuð, PPP, í bandarískum dölum, í spá OECD og Economist Intelligence Unit fyrir 2005-30. Samkvæmt sömu spá muni útgjöld til varnarmála í Kína nema 238 billjörðum dala árið 2030 en 1,398 billjörðum dala í OECD-ríkjunum.

Því telur G. John Ikenberry, prófessor við Princeton-háskóla, í nýlegri grein í Foreign Affairs að það sé einföldun að stilla dæminu upp á þann veg að vöxtur kínverska hagkerfisins þurfi að vera ógn við valdajafnvægið í heiminum.

Og þá má ekki gleyma því að miklu varðar hvernig hinn Asíurisinn, Indland, þróast með tilliti til varnarmála á næstu áratugum.

Endurnýja kjarnavopnin

En hvert stefnir Kínaher?

Til að leita svara við þessari spurningu leitast bandarísk hermálayfirvöld við að greina áherslurnar í þróun heraflans og meta hver markmiðin eru út frá þeim hergögnum sem keypt eru hverju sinni.

Þessi nálgun er uppistaðan í árlegri skýrslu bandaríska varnarmálaráðuneytisins til Bandaríkjaþings (sjá heimildaskrá).

Þar segir að hraði og umfang nútímavæðingar kínverska hersins hafi aukist á síðustu árum. Keypt hafi verið þróuð vopn frá öðrum ríkjum og haldið áfram á braut mikillar fjárfestingar í vopnaframleiðslu- og hertækniðnaði landsins. Þróunin breyti hernaðarjafnvæginu í Austur-Asíu og hafi áhrif utan álfunnar.

Margt skýrir hin auknu áhrif. Kjarnorkuvopnabúrið hefur verið nútímavætt og net gagnflauga, bæði langdrægra og skammdrægra verður sífellt þéttriðnara, og má þar nefna flaugar sem hafa 1.500 km drægni og beina má gegn herskipum, að viðbættum flaugum til að granda gervihnöttum í geimnum.

Um þúsund flaugum er nú beint að Taívan, tala sem hækkar um hundrað flaugar á ári, og telja bandarísk hermálayfirvöld skotflaugakerfi Kína nú það „virkasta“ í heiminum.

Skýrsluhöfundar varnarmálaráðuneytisins draga hernaðaruppbygginguna saman í þeim orðum að herinn sé að breytast úr fjölmennum landher sem varist geti árásum á kínversku landsvæði í her sem geti haft betur í bardögum við hátækniheri við jaðar yfirráðasvæðis síns. En það er aðeins upphafið. Þrátt fyrir takmarkaða þekkingu alþjóðasamfélagsins bendi greining á hernaðaruppbyggingunni til að verið sé að búa herinn undir stríð á öðrum svæðum, sem sagt í öðrum ríkjum, „svo sem undir átök vegna auðlinda eða vegna deilna um landsvæði“.

Byggja upp olíubirgðirnar

Efnahagsuppbyggingin í Kína hefur krafist gífurlegs magns af hráefnisvörum, eftirspurn sem leitt hefur til verðhækkana á ýmsum vörum, áburði, olíu og málmum, svo dæmi séu tekin. Ekkert bendir til að lát verði á þessari eftirspurn: Á tímabilinu 2000 til 2030 ráðgerir bandaríska varnarmálaráðuneytið að yfir 400 milljónir Kínverja muni flytja úr sveitum í borgir, fólksflutningar sem muni eiga þátt í því að á þessum tíma muni um helmingur samanlagðra byggingarframkvæmda í heiminum eiga sér stað í Kína.

Hin hraða uppbygging neytendamarkaðarins mun stórauka tekjur ríkisins og það kemur því ekki á óvart að Bandaríkjaher skuli fylgjast grannt með þróuninni, sem Kínverjar reyna að gera sem minnst úr.

Fyrir því eru sögulegar ástæður.

Deng Xiaoping, fyrrverandi leiðtogi kommúnistaflokksins og faðir umbreytingarinnar yfir í kínverskt markaðshagkerfi fyrir um þrjátíu árum, boðaði utanríkisstefnu ríkis sem gerði sem minnst úr áhrifum sínum og gerði ekki tilkall til leiðtogasætis í heimspólitíkinni.

Þörfin fyrir hráefnisvörur hefur hins vegar leitt til þess að Kínastjórn hefur markvisst aukið áhrif sín og styrkt viðskiptanet sitt, svo sem með fjárfestingum í olíuiðnaði Súdans, eins og fræðimennirnir Stephanie Kleine-Ahlbrandt og Andrew Small benda á í grein í áðurnefndu tölublaði Foreign Affairs. Og eins og rakið var í Morgunblaðinu fyrir skömmu hafa Kínverjar fjárfest fyrir þúsundir milljarða króna í Afríku.

Þrátt fyrir þessi umskipti halda Kínverjar fast í þá hefð að gera lítið úr áhrifum sínum og eins og við var að búast afgreiddu kínversk stjórnvöld hina árlegu skýrslu varnarmálaráðuneytisins sem „afbökun á staðreyndum“. „Bandaríkin ættu að falla frá kaldastríðshugarfari sínu,“ sagði í tilkynningu utanríkisráðuneytisins.

Bandarískir ráðamenn taka yfirlýsingum Kínahers með fyrirvara og benda á að talið sé að kínverskir aðilar hafi margsinnis brotist inn í tölvukerfi víðs vegar um heim, þ.m.t. í kerfi í notkun Bandaríkjastjórnar.

Uppbygging markaðhagkerfisins mikilvægasta viðfangsefnið

Flest bendir til að dregið hafi úr spennunni vegna Taívans á síðustu árum og ef haft er í huga að Ólympíuleikarnir í Peking í ágúst nk. nálgast óðfluga má ætla að öllum árum verði róið að því markmiði að bæta ímynd landsins út á við.

Það vegur einnig þungt að þetta fjölmennasta ríki heims er í miðju umbreytingarferli frá vanþróuðu ríki fámennrar yfirstéttar og geysifjölmennrar bændastéttar, yfir í markaðsdrifið risahagkerfi sem mun ekki eiga sér nokkur fordæmi í mannkynssögunni.

Það er því algert lykilatriði í stjórnmálum landsins að tryggja áframhaldandi uppbyggingu innviða, ásamt því sem kröfur um lýðræðislega stjórnarhætti fara vaxandi. Slík uppbygging krefst hins vegar óheyrilegs magns hráefnisvara, málma og byggingarefna þar á meðal, og því ekki að ástæðulausu sem bandaríska varnarmálaráðuneytið óttast auðlindastríð.

Önnur áskorun er fólgin í þeirri félagslegu ólgu sem birtist í tíðum uppreisnum almennings gegn ofríki og misrétti. Kínafræðingurinn Göran Malmqvist taldi í samtali við Morgunblaðið fyrir áramót fjölda slíkra tilvika hafa verið skráðan í tugum þúsunda árið 2007. Malmqvist sagði: „Á árinu 2006 var efnt til 97.000 mótmælaaðgerða í landinu. Í þessum hópi eru bændur sem grípa það sem er hendi næst og ráðast á lögreglustöðvar, kveikja í þeim, og velta lögreglubifreiðum. Allt tal stjórnarelítunnar um áherslu á félagslega einingu er því út í loftið.“

Í ljósi þessa fjölda vaknar spurning hvort og þá hvenær sú ólga kunni að þróast yfir í fjöldahreyfingar fyrir lýðræði. Ekki verður gerð tilraun til að svara þeirri flóknu spurningu hér en látið nægja að nefna að í áðurnefndu tölublaði Foreign Affairs var haft eftir kínverskum embættismanni að enginn vænti þess að lýðræði skjóti rótum innan fimm ára. Sumir nefni tíu til fimmtán ár í þessu samhengi, aðrir þrjátíu til þrjátíu og fimm ár, enginn sex áratugi.

Í hnotskurn
» Fjárfestingarbankinn Goldman Sachs telur líkur á að hagkerfi Brasilíu, Rússlands, Indlands og Kína verði samanlagt orðin stærri en hagkerfi Þýskalands, Frakklands, Ítalíu, Japans, Bretlands og Bandaríkjanna árið 2050.
» Árið 2004 tóku Kínverjar ákvörðun um að byggja upp olíubirgðir landsins, úr 100 milljón tunnum 2008 í hálfan milljarð tunna á næsta áratug.
» Meðal ríkja sem Kínverjar hafa fjárfest í eru Angóla, Lýðveldið Kongó, Túrkmenistan og Nígería.
» Þá hafa Kínverjar gert samninga við Írana um kaup á gasi fyrir hundruð milljarða króna.
» Kínverski herinn er sá fjölmennasti í heimi.
» Taívanar hyggjast efla her eyjarinnar á næstu árum.
» Langdrægar DF-31, DF-31A og JL-2 flaugar auka getu Kínverja til kjarnorkuárása verulega, drægni DF-31A er frá 11.200 km, sem nær yfir öll Bandaríkin.

Heimildir

John L. Thornton, „Long Time Coming“, Foreign Affairs, janúar/febrúar, 2008.

G. John Ikenberry, „The Rise of China and the Future of the West“, sama tbl. FA.

Stephanie Kleine-Ahlbrandt og Andrew Small, „China's New Dictatorship Diplomacy“, sama blað.

„Military Power of the People's Republic of China 2008“, Office of the Secretary of Defense. Aðgengileg á netinu.

„Risaríki á brauðfótum.“ Viðtal við Göran Malmqvist í Morgunblaðinu 13. nóv. 2007.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent »

Kjörstaðir voru opnaðir í morgun.

Forsetakosningar í Egyptalandi hafnar

06:15 Fyrstu frjálsu forsetakosningar í sögu Egyptalands hefjast í dag, 15 mánuðum eftir að Hosni Múbarak hröklaðist frá völdum. Biðraðir mynduðust þegar kjörstaðir opnuðu í morgun. Meira »
Réttarhöldunum yfir norska fjöldamorðingjanum Anders Behring Breivik fer senn að ljúka.

Breivik fær tíma til útskýringa

Í gær, 22:15 Norski fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik mun fá meiri tíma en til stóð til að tjá sig við lok réttarhaldanna, en áður hafði verið gert ráð fyrir. Búist er við að þeim ljúki 6. júní. Meira »

Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu

Í gær, 22:00 Meira en 57.000 manns eru í fangelsi á Kúbu, þar af hafa um 23.000 einhvern starfa og fá greitt fyrir. Hluti þeirra er á bak við lá og slá vegna stjórnmálaskoðana sinna. Meira »

Kennarar og nemendur mótmæla

Frá mótmælunum á Spáni í dag.
Í gær, 20:09 Tugþúsundir kennara og nemenda á Spáni mótmæltu í dag fyrirhuguðum niðurskurði í menntamálum í landinu. Fólkið lagði niður störf og gekk fylktu liði um götur og stræti Spánar, margir í grænum stuttermabolum sem eru orðnir að einkenni mótmælanna. Meira »

Væri upphafið að endalokum evrunnar

Írski þingmaðurinn Richard Boyd Barrett.
Í gær, 19:39 Evrópusambandið mun halda áfram að styðja Írland og veita því neyðaraðstoð ef á þarf að halda jafnvel þó að írskir kjósendur hafni fjármálastöðugleikasáttmála sambandsins. Meira »

Sagðist vera með sprengju í líkamanum

Ein af flugvélum bandaríska flugfélagsins US Airways.
Í gær, 20:32 Bandarískri farþegaflugvél flugfélagsins US Airways, sem var á leiðinni frá París til borgarinnar Charlotte í Norður-Karólínuríki í Bandaríkjunum var lent snarlega eftir að frönsk kona sem var farþegi um borð, sagðist vera með „ígræddan búnað“ sem gæti grandað vélinni. Meira »

14 ára skaut á skólafélaga

Lögregla var með mikinn viðbúnað í bænum Memmingen í Suður-Þýskalandi þegar 14 ára piltur skaut ...
Í gær, 19:47 Fjórtán ára drengur skaut á skólafélaga sína í bænum Memmingen, skammt frá borginni München í Suður-Þýskalandi og hljóp síðan á brott. Honum var veitt eftirför og skaut hann þá nokkrum skotum til viðbótar. Engan sakaði og hefur pilturinn nú verið tekinn höndum og mun sæta geðrannsókn. Meira »

Ummæli prests vekja reiði

Fánar samkynhneigðra blakta á lofti í Gleðigöngunni í Reykjavík. Mannréttindi samkynhneigðra eru ekki alls staðar ...
Í gær, 17:31 Ummæli prests baptistasöfnuðar í Norður-Karólínuríki í Bandaríkjunum um að safna ætti öllu samkynhneigðu fólki saman, reka það inn í rétt og láta það síðan deyja drottni sínum, hafa vakið mikla reiði víða. Presturinn lét svo ummælt í predikun sem tekin var upp á myndband og síðan sett á YouTube. Meira »

Gríski harmleikurinn heldur áfram

Christine Lagarde, framkvæmdastjóri AGS.
Í gær, 17:10 Christine Lagarde, framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, segir að vinstriflokkarnir í Grikklandi verði að horfast í augu við þann niðurskurð sem nauðsynlegur sé, eigi Grikkir að komast upp úr þeim efnahagslega öldudal sem þeir eru nú í. Meira »

Neyðarástand á Ítalíu

Íbúðarhús sem skemmdist í jarðskjálftanum í bænum Finale Emila skammt frá borginni Modena.
Í gær, 16:46 Neyðarástandi hefur verið lýst yfir á Norðaustur-Ítalíu, þar sem öflugur jarðskjálfti sem mældist 6 stig, reið yfir í fyrradag. Um 5.000 manns eru heimilislaus eftir að fjöldi íbúðarhúsa skemmdist í skjálftanum og ítalska ríkisstjórnin hefur lofað því að fé verði veitt til uppbyggingar. Meira »

Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift

Í gær, 17:00 Þrjátíu pör sem gefin voru saman fyrir um ári með borgaralegum hætti í Uppsölum í Svíþjóð eru enn þrátt fyrir það ógift. Í ljós kom að borgarstjórinn sem gaf pörin saman hafði ekki lengur réttindi til þess þegar brúðkaupin fóru fram. Meira »

Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó

Á hverju ári eru um 100.000 konur í Suður-Ameríku seldar mansali milli landa.
Í gær, 16:15 Á hverju ári eru þúsundir kvenna þvingaðar í vændi og seldar frá Mexíkó til Bandaríkjanna. Í úttekt BBC á mansali í Mexíkó kemur fram að stúlkurnar séu flestar á aldrinum 14-19 ára og séu þvingaðar til að þjónusta 25-30 karla á hverri vakt. Flestar eru sendar til New York. Meira »

Kæfðu dóttur sína með plastpoka

Shafilea Ahmed.
Í gær, 16:09 Foreldrar breskrar stúlku hafa verið ákærðir fyrir að kæfa dóttur sína með því að troða plastpoka upp í hana og kæfa hana. Fjögur börn þeirra horfðu upp á systur sína myrta, en í dag lýsti eitt þeirra fyrir dómi því sem gerðist þegar stúlkan lést. Meira »

Stuðningur eykst við jafnaðarmenn

Angela Merkel, kanslari Þýskalands.
Í gær, 15:51 Stuðningur við þýska jafnaðarmenn hefur aukist verulega samkvæmt nýrri skoðanakönnun fyrir dagblaðið Bild en samkvæmt henni mælast þeir nú með 32% fylgi á meðan helsti keppinauturinn, kristilegir demókratar undir forystu Angelu Merkel kanslara Þýskalands, mælist með 33%. Meira »

Mótmæli kveðin niður í Bakú

Júróvisjón söngvakeppnin fer ekki framhjá neinum sem staddur er í Bakú í Aserbaídsjan, en mótmæli ...
Í gær, 15:16 Allra augu í Evrópu verða á Aserbaídsjan í kvöld, þegar fyrri forkeppni Evróvisjónsöngvakeppninnar fer fram í Bakú. Raddir mótmælenda þar í landi heyrast hins vegar ekki víða. Í gærkvöldi stöðvaði lögregla í Bakú af hörku um 100 mótmælendur sem kröfðust m.a. frelsunar pólitískra fanga. Meira »

Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn

Zikovs skaut Egle, sem var óvopnaður, þrisvar sinnum. Með Egle í för var ung dóttir ...
Í gær, 15:52 Héraðsdómstóll í Lettlandi hefur dæmt mann í 17 ára fangelsi fyrir að hafa skotið mann til bana í kvikmyndahúsi. Lögfræðingurinn Nikolajs Zikovs skaut bankastarfsmanninn Aigars Egle til bana í kjölfar rifrildis, en Zikovs þótti Egle hafa of hátt þegar hann var að borða poppkorn. Meira »

Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands

Í gær, 15:16 Þjóðaratkvæðagreiðsla um svonefndan fjármálastöðugleikasáttmála innan Evrópusambandsins fer fram á Írlandi 31. maí næstkomandi en Írar eru einir þjóða innan sambandsins sem munu kjósa um sáttmálann, sem ætlað er að stuðla að efnahagslegum stöðugleika á evrusvæðinu og auknum samruna innan þess, þar sem írska stjórnarskráin krefst þess. Meira »

Tók 7 ára stúlku í gíslingu

Í gær, 15:14 Tékknesk kona gekk inn í skóla í borginni Havirov, stakk kennara nokkrum sinnum með hníf og tók sjö ára stúlku í gíslingu. Lögreglan handtók hana skömmu síðar. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Barnastóll á hjól
Mjög vandaður. Vottaður fyrir allt að 22 kg. Verð 6000 kr. Uppl. í síma 848...
Trúlofunar- og giftingahringar
Auk gullhringa eigum við m.a. titanium og tungstenpör á fínu verði. Sérsmíði, fr...
Áttu von á gestum? - www.nicecars.is
Áttu von á gestum í sumar? Bílaleigan Nice Cars ehf sérhæfir sig í 4x4 bílum. Fr...
HÚSGÖGN, HEIMILISTÆKI, SKRAUTMUNIR OG FLEIRA TIL SÖLU.
Allar upplýsingar, verð og myndir eru á heimasíðunni: http://husgogn.net Hægt e...
 
Aðalfundur lögfræðingafélags íslands

Aðalfundur Lögfræðingafélags Íslands ve...
Samkoma - salt
Félagsstarf
Safnaðarheimilið Grensáskirkju Samk...
Til sölu m-bens e-200

Til sölu M-BENS E-200 Árgerð...
Safnstjóri
Stjórnunarstörf
Staða safnstjóra Minjasafns Austurlands ...