Fjögur börn létust í árás Ísraelshers

Fjögur börn voru drepin í árás Ísraelshers á Gaza svæðinu í morgun.  Alls létust fimm manns og sex aðrir eru í lífshættu. Yngsta barnið var fimmtán mánaða gamalt og það elsta var 6 ára gamalt. 

Árásin átti sér stað nærri landamærum Ísraels í norðurhluta Gaza. Heryfirvöld Ísraela segja að loftfar hafi ráðist á hóp vopnaðra manna sem voru í eftirlitsferð.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert